Mynd: Heiða Helgadóttir

Vinnur út frá innsæi og tilfinningum

Ef til vill getur verið gott að nota abstrakt mynd­mál og hugsun til að ná utan um þá flóknu tíma sem við lifum á. Það segir Marta María Jóns­dóttir sem sýnir teiknuð mál­verk sín í Sverris­sal Hafn­ar­borgar. Verkin sýna heim sem er á mörkum þess að mynd­ast og eyð­ast.

Fimmtán verk mynd­list­ar­kon­unnar Mörtu Maríu Jóns­dóttur eru nú til sýnis í Sverris­sal Hafn­ar­borgar undir yfir­skrift­inni Umrót. Verkin eiga það sam­eig­in­legt að í þeim heldur Marta María áfram að vinna með mörkin á milli teikn­ingar og mál­verks, sem hún hefur verið að kanna á und­an­förnum árum. „Það má segja að þetta séu teiknuð mál­verk,“ útskýrir hún. „Þau sýna heim sem er á mörkum þess að mynd­ast og eyð­ast, sýna að ekk­ert stendur í stað, að allt er að breyt­ast, alltaf. Þetta er stefið og and­rúms­loftið sem sýn­ingin er unnin í og þaðan kemur tit­ill­inn, Umrót.“

Hún seg­ist bæði hafa unnið út frá sínum eigin innsta kjarna en líka út frá tækni­legum spurn­ingum, eins og þeirri hvernig best sé að búa til spennu á mynd­fleti. „Ég er alltaf að reyna að þróa mynd­málið sem ég vinn með og finna nýjar leiðir. Það er svo alltaf ánægju­legt ef það leiðir mann á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár