Fjör á gang­inum Fjöl­skyld­urnar tvær mál­uðu og inn­rétt­uðu gang­inn í sam­ein­ingu. Fyrir vikið er hann óvenju heim­il­is­legur, af sam­eign að vera. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjársjóður að eiga góða nágranna

Nú til dags er algeng­ara en áður fyrr að nágrannar þekk­ist lítið sem ekk­ert. Inni á milli eru þó þau sem telja gott granna­sam­band mik­ils virði og eru til­bún að gera ýmis­legt til að glæða það lífi. Hér deila þrír hópar af góðum grönnum sögum af nánum nágranna­tengslum.

„Megum við Bríet fara út á bak við sund­laug­ina á snjó­þotur?“ spyr Elísabet og mömm­urnar, þær Tinna Ásgeirs­dóttir og Líf Magneu­dóttir, svara báðar í kór: „Já, endi­lega.“ Stundum er engu lík­ara en að pörin í íbúð­unum á 2. og 3. hæð­inni á Hagamel 32 eigi börnin sjö öll saman. Börnin sjálf þekkja í það minnsta varla annan veru­leika en að vera í nánu sam­neyti við hina fjöl­skyld­una, enda hafa þær deilt stiga­gangi í sjö ár. Börnin flæða á milli hæða og minna um margt meira á systk­ini en nágranna.

Gott að eiga hvert annað aðÞau Eiríkur, Snorri, Líf og Tinna eru sam­mála um að það sé mik­ill kostur að geta treyst á hjálp og stuðn­ing nágranna sinna í hvers­dags­líf­inu. Börnin hafa líka mik­inn félags­skap hvert af öðru.

Á annarri hæð húss­ins búa þau Tinna Ásgeirs­dóttir og Eiríkur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár