Fjar­lægur draumur rætt­ist Enid naut þess inni­lega að leika í bíó­mynd­inni Tryggð, enda hefur hún alla tíð haft ástríðu fyrir leik­list. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er hamingju­samasta kona í heimi“

Bíó­myndin Tryggð fjallar um sam­búð þriggja kvenna og menn­ing­ar­á­rekstra þeirra á milli. Enid Mbabazi leikur Abebu. Líkt og hún var Enid ein­stæð móðir sem flaug til móts við óviss­una á Íslandi, í þeirri von að öðl­ast betra líf.

Það var í nóv­em­ber árið 2007 sem ekkjan og ein­stæða móð­irin Enid Mbabazi frá Úganda steig út úr flug­vél í Keflavík, eftir langt ferða­lag frá einni heims­álfu til ann­arrar. Hún hafði örsjaldan stigið upp í flug­vél og aldrei áður komið til Evrópu. Nú var hún komin alla leið norður til Íslands. Þar sem hún flaug inn til lend­ingar síð­degis og horfði hug­fangin út kom henni í opna skjöldu hversu dimmt var yfir. Þó var myrkrið ekki þyngra en svo að hún sæi ekki snjó­inn, sem fékk hana til að taka and­köf af hrifn­ingu. Hún hafði bara séð snjó í bíó­myndum. Enid hafði skilið tveggja ára dóttur sína, Patience, eftir í umsjá ömmu sinnar í Úganda. Hún von­aði að þær mæðgurnar yrðu ekki aðskildar lengi en hér ætl­aði hún að búa hjá mág­konu sinni, freista þess að finna vinnu og safna pen­ingum til að geta fengið dóttur sína til sín og veitt henni betra líf. Hún hafði engu að tapa.

Heima í Úganda átti hún ekk­ert, mað­ur­inn hennar hafði nýlega lát­ist í bílslysi og þar var enga vinnu að hafa fyrir konu í hennar stöðu, ein­stæða og alls­lausa móður. Hún vissi ekki hvað biði hennar á Íslandi en trúði því að lífið gæti orðið betra. Það átti eftir að ganga eftir, þrátt fyrir að hún ætti vissu­lega eftir að lifa nokkur erfið ár meðan hún byggði upp líf sitt frá grunni. Enid grun­aði aldrei að fjar­lægur draumur hennar yrði að veru­leika, að tæpum ára­tug seinna ætti hún eftir að birt­ast í aðal­hlut­verki á stóra tjald­inu og hún ætti eftir að full­yrða, án þess að ýkja nokkurn skap­aðan hlut: „Ég er ham­ingju­samasta kona í heimi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár