Rann­sakar rými kvenna Anna Kolfinna Kuran og fleiri lista­konur taka Mengi yfir föstu­dag­inn 25. jan­úar og fylla rýmið af kvenna­orku. Mynd: Heiða Helgadóttir

Systraást og samstaða

Föstu­dags­kvöldið 25. jan­úar ætla lista­konur úr ýmsum áttum að gera inn­rás í Mengi og fylla rýmið af kvenna­orku og krafti, undir hand­leiðslu lista­kon­unnar Önnu Kolfinnu Kuran.

Í rúm tvö ár hefur Anna Kolfinna Kuran unnið að marg­þættu rann­sókn­ar­verk­efni undir nafn­inu Konu­lands­lag. Það hefur hún túlkað með hjálp ólíkra miðla, svo sem dansi, texta, víd­eó­verkum, ljós­myndum og gjörn­ingum. Lífið í New York-borg er upp­spretta verk­anna en þar var Anna Kolfinna við nám fram til árs­ins 2017. „Námið sem ég var í heitir Performance Studies og var við New York-háskóla. Þetta var fræði­legt hug­vís­inda­nám en þver­fag­legt svo ég hafði rými til að gera verk­lega hluti líka. Verk­efnið mitt teng­ist borg­inni og upp­lifun minni af líf­inu þar. Fæðing þess var upp­lifun mín af cat calling-menn­ing­unni, þegar verið er að kalla á eftir manni úti á götu. Ég upp­lifði mig á vissan hátt sem fórn­ar­lamb þess­arar menn­ingar, að því leyti að ég þurfti að sitja undir þessum köllum af því að ég er kona. 

Með verka­mönnum í New YorkÚr ljós­mynda­seríu sem tekin var í New …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár