Vongóð Heklu blæddi á tíma­bili oft á dag. Nú hefur dregið veru­lega úr blæð­ing­unum, sem þó hefur engin skýr­ing fund­ist á ennþá. Mynd: Hólmfríður Helga Sigurðardóttir

Hefur blætt úr augum og eyrum í fjögur ár

Áfallastreituröskun í kjöl­far nauð­gana þegar hún var tólf ára er eina skýr­ingin sem Lilja Bára Krist­jáns­dóttir kann á blæð­ingum úr augum og eyrum dóttur sinnar, Heklu. Þrátt fyrir ótal rann­sóknir um nokk­urra ára skeið hafa læknar ekki fundið neitt lík­am­legt að henni.

„Af hverju er eng­inn svona á Íslandi annar en ég, mamma?“ er ein af þeim spurn­ingum sem Hekla, sextán ára stelpa frá Dalvík, hefur reglu­lega spurt mömmu sína að á und­an­förnum árum. Það er ekki skrýtið að hana sé farið að lengja eftir svörum og því að ein­hver skilji það sem hún er að ganga í gegnum. Í fjögur ár hefur henni blætt um augu og eyru, auk þess sem­hún kastar upp blóði og þá hefur reglu­lega liðið yfir hana.

Þær mæðgur búa í nota­legri íbúð í fal­legu húsi á Dalvík, ásamt Kötlu, sem er eldri systir Heklu. Ég banka upp á hjá þeim á fal­legum en ísköldum laug­ar­dags­eft­ir­mið­degi. Það er nota­leg stemn­ing og hlýtt inni hjá þeim, gott að kom­ast inn úr kuld­anum. Úr útvarp­inu ómar lág tón­list og við setj­umst niður í stof­unni. Hekla lítur út og kemur fram eins og ósköp venju­leg stelpa í 1. bekk …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár