Hugmyndin um listamenn sem villimenn

Katrín Sig­urð­ar­dóttir mynd­list­ar­kona er full­trúi Íslands á Sao Paulo-tví­ær­ingnum sem nú stendur yfir í Brasilíu. Katrín hefur starfað á Íslandi og í Banda­ríkj­unum í þrjá­tíu ár og sýndi nýlega verk í Cleveland í Banda­ríkj­unum þar sem íslensk jörð er í aðal­hlut­verki. Æsku­heim­ili hennar í Hlíðunum er við­fangs­efni verka sem eru til sýnis í Washington DC um þessar mundir.

Hugmyndin um listamenn sem villimenn
Lista­manna­launin mik­il­væg Katrín segir að ekki megi van­meta þann stuðn­ing sem íslenska ríkið hafi í gegnum tíð­ina veitt lista­mönnum. Þeim stuðn­ingi megi meðal ann­ars þakka vel­gengni íslenskra list­manna erlendis. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er gaman að takast á við hið ómögu­lega, að sam­eina í eitt tvo staði, fjarri hvor öðrum. Í öllum þessum verkum er ég einmitt að leika mér með þetta. Ísland og Banda­ríkin, Banda­ríkin og Brasilía. Að ein­hverju leyti þá er áhugi minn á svona stað­rænum sam­runa, tengdur minni eigin sögu, sem Íslend­ingur í fjar­lægu landi, en upp á síðkastið hafa það kannski verið efnin og formin sjálf og stað­ar­upp­runi þeirra sem hafa orðið að aðal­at­riði. Timbur og pappír frá Brasilíu, íslenskur jarð­leir og hús í Hlíðunum.“

Þegar Katrín dvelur erlendis er hún oft spurð um hvað skýri þá miklu grósku sem hefur verið á Íslandi síð­ustu ára­tugi í listum. Hvernig svona lítil þjóð getur átt svona marga frá­bæra lista­menn. Algengt sé að það sé sett í sam­hengi við villta nátt­úr­una og sér­stök nátt­úru­tengsl eyj­ar­skeggja. „Það eimir eftir af þess­ari gömlu hug­mynd sem aldrei hefur verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár