Kerfið hefur brugðist þeim á allan hátt

For­eldr­ar Þóru Bjark­ar Ottesen, þau Ásta Ottesen og Páll H. Jóns­son, segj­ast löngu bú­in að átta sig á því að kerf­ið í heild sinni virki ekki fyr­ir þá sem eru vernd­ar þurfi. Þeir segja fyrr­ver­andi tengda­son sinn, Gary Cl­ar­ke, margsinn­is hafa sýnt af sér hegð­un sem gefi þeim og öðr­um fjöl­skyldu­með­lim­um til­efni til að standa stugg­ur af hon­um.

Kerfið hefur brugðist þeim á allan hátt
Líður betur núna Hjónin eru ósátt við að dóttir þeirra og barnabarn hafi þurft að flýja land en á sama tíma fegin að þeim líður betur þar sem þau eru núna. Mynd: Hólmfríður H. Sigurðardóttir

Þegar þau Gary og Þóra skildu fyrir rúmlega átta árum réðst Gary inn á heimili foreldra hennar þar sem hann gekk í skrokk á Páli og hrinti Ástu harkalega á vegg. Í kjölfar þess og annarra atvika fékk Þóra nálgunarbann á hann. Það gilti þó aðeins á milli þeirra tveggja, en ekki milli hans og fyrrverandi tengdaforeldranna eða barnsins.

„Ég man eftir einu skipti þegar ég var að ganga með drenginn á leikskólann snemma um morgun að vetri til. Þá kom hann allt í einu stökkvandi út úr myrkrinu og mér dauðbrá og varð skíthrædd. Í annað skipti, þegar við vorum að fara með yngri dóttur okkar í fermingarmyndatöku, kom hann stökkvandi út úr bílnum og gerði hana og okkur dauðskelkuð. Hvernig hann vissi að við vorum á leið í fermingarmyndatöku með dóttur okkar á þessum stað vitum við ekki en svona var þetta. Hann kom hvert sem var þegar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár