Hundruð rússneskra bóka mygla ofan í kjallara

Stærsta rúss­neska bóka­safn­ið hér á landi er að skemm­ast í raka og myglu í kjall­ara sam­komu­húss Rúss­nesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unn­ar á Öldu­götu. For­svars­menn Rúss­nesku menn­ing­ar­mið­stöðv­ar­inn­ar kalla eft­ir hjálp til að bjarga bóka­safn­inu en mæta hvarvetna áhuga­leysi.

Hundruð rússneskra bóka mygla ofan í kjallara
Myglandi bækur Margar bókanna eru nú þegar ónýtar og lítill tími til stefnu ef bjarga á þeim sem eftir eru. Mynd: Maria Ylfa Lebedeva

Þegar stjórnendur Bókasafns Kópavogs tóku ákvörðun um að loka rússnesku deildinni árið 2016 var þeim sjö hundruð bókum sem tilheyrðu því safni pakkað saman og komið á rússneska sendiráðið. Þar gátu bækurnar ekki verið og því var þeim komið áfram til meðlima Rússnesku menningarmiðstöðvarinnar, félagsskapar sem hefur þann tilgang að efla tengsl á milli Rússa og Íslendinga.

Tekin var ákvörðun um að stofna bókasafn utan um bækurnar, sem voru um sjö hundruð talsins, og var gert samkomulag við prest Rétttrúnaðarkirkjunnar um að koma því fyrir í samkomuhúsi Rússa við Öldugötu 44, þar sem söfnuður kirkjunnar á Íslandi hefur aðstöðu. Húsið er opið daglega og þar fara meðal annars fram guðsþjónustur um helgar.

Engin svör og enginn áhugi

„Við byrjuðum að byggja upp bókasafnið og fórum að fá mikið af gefins bókum til viðbótar,“ rifjar María Ylfa Lebedeva upp, en hún er ein þeirra sem standa að menningarmiðstöðinni. Þegar þær voru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár