Beint lýðræði stúdenta nýtt í hugmyndasöfnun

Í verk­efn­inu „Háskól­inn okkar“ geta stúd­entar kosið um hug­myndir sem þeir sjálfir senda inn. Elísabet Brynjars­dóttir for­seti Stúd­enta­ráðs lýsir góðu gengi við hug­mynda­söfn­un­ina. Mark­miðið einnig að hækka rödd stúd­enta í sam­fé­lag­inu.

Beint lýðræði stúdenta nýtt í hugmyndasöfnun
Forseti Stúd­enta­ráðs Mun vinna allar hug­myndir með hug­mynda­smiðum og að lokum verður ein kosin til að gera úr aug­lýs­inga­her­ferð.

Þann 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn opn­aði Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands fyrir hug­mynda­söfnun sem þau kalla „Háskól­inn okkar” og snýst verk­efnið um að „færa hags­muna­bar­áttu stúd­enta nær öllum stúd­entum Háskóla Íslands.”

Á meðal hug­mynda sem eru ofar­lega á huga stúd­enta er aukið úrval vegan fæðu í mötu­neyti háskól­ans, lág­vöru­verslun með mat­væli á háskóla­svæð­inu og ýmsar hug­myndir sem bæta þjón­ustu fyrir stúd­enta á svæð­inu, t.d. með apó­teki eða nýrri lík­ams­rækt­ar­að­stöðu.

Í sam­tali við Stundina lýsir Elísabet Brynjars­dóttir for­seti Stúd­enta­ráðs góðu gengi við hug­mynda­söfn­un­ina ásamt góðu sam­starfi við skóla­yf­ir­völd. Hug­myndin byggir á skorti á beinu lýð­ræði stúd­enta og er einnig mark­miðið að auka áhuga þeirra á mál­efnum sem skipta stúd­enta máli. 

Stúd­entarMark­miðið með hug­mynda­söfnun og kosn­ingu er meðal ann­ars að vekja athygli á hags­muna­bar­áttu stúd­enta, og gefa þeim rödd.

„Ég hef talað við nem­endur sem eru kannski ekki á kafi í stúd­entapólítík­inni og það sést að fólk hefur mikið til mál­anna að leggja án þess að vera í ein­hverri opin­berri stöðu innan Stúd­enta­ráðs.“ Hug­myndin hefur verið á stefnu­skrá Röskvu en Vaka fjall­aði einnig um málið í sinni kosn­inga­bar­áttu í ár. 

Aðspurð um hvort dæmi um beint þátt­töku­lýð­ræði stúd­enta hafi verið fram­kvæmt síð­ustu ár þekkir hún ekki til þess, en sam­skipti Stúd­enta­ráðs við stúd­enta hafa verið bætt. Í bland við það að kjósa hug­myndir núna geta stúd­entar sett inn rök með eða á móti hug­mynd­unum.

Allar hug­myndir sem stúd­entar senda inn verða settar í far­veg og mun Elísabet hitta hvern og einn hug­mynda­smið og fara yfir hug­mynd­ina og hvernig aug­lýs­inga­her­ferðin gæti verið fram­kvæmd. „Það verður alla vega hlustað á allar hug­myndir sem ber­ast.“

Hug­mynda­söfnun lýkur mánu­dag­inn 1. októ­ber og líður þá vika áður en kosn­ing hefst þar sem ein hug­mynd verður valin og aug­lýs­inga­her­ferð gerð úr. Verður hún fram­kvæmd af Stúd­enta­ráði í sam­vinnu við hug­mynda­smið­inn. Aug­lýs­ingin hafi einnig það mark­mið að hækka raddir stúd­enta í sam­fé­lag­inu og vekja athygli á þeim og hags­muna­bar­áttu þeirra. 

„Ég hvet bara alla til að taka þátt,“ segir Elísabet í lokin. „Sama hversu lítil eða stór hug­myndin er, það mun allt fara í ákveð­inn far­veg og ég vil að raddir sem flestra heyr­ist. Hags­munir stúd­enta er eitt­hvað sem varðar okkur öll.“

Kosning á mál­efnum hefst 8. októ­ber og verður í viku. Hægt er að nálg­ast hug­mynda­söfn­un­ina hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár