Ásdís Halla og Hvalur hljóta frelsisverðlaun SUS

Ásdís og hval­veiði­fyr­ir­tækið eru talin hafa unnið ötul­lega að auknu frelsi sam­kvæmt stjórn SUS.

Ásdís Halla og Hvalur hljóta frelsisverðlaun SUS
Valhöll Verð­launin verða veitt við hátíð­lega athöfn í Valhöll.

Frels­is­verð­laun Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna verða veitt við hátíð­lega athöfn þann 3. októ­ber næst­kom­andi. Verð­launa­hafar þetta árið eru Ásdís Halla Braga­dóttir og fyr­ir­tækið Hvalur hf.

Ásdís Halla er fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, stjórn­ar­for­maður Klíník­ur­innar og braut­ryðj­andi á sviði einka­rek­innar heil­brigð­is­þjón­ustu. Hvalur hf. í eigu Krist­jáns Lofts­sonar er eina fyr­ir­tækið í heim­inum sem stundar veiðar á lang­reyðum í gróða­skyni.

Þetta er í tólfta sinn sem frels­is­verð­launin eru afhent, en rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason og vef­síðan Andríki hlutu verð­launin fyrst árið 2007.

Við­ur­kenn­ingin er veitt árlega þeim sem stjórn SUS telur að hafi unnið ötul­lega að auknu frelsi. 

Kristján og Hvalur hf. voru umfjöll­un­ar­efni Stund­ar­innar í vik­unni þegar greint var frá því að aðgerða­hóp­ur­inn Avaaz hefði efnt til und­ir­skrifta­söfn­unar þar sem veiðum fyr­ir­tæk­is­ins er mót­mælt og skorað á rík­is­stjórn Íslands að stöðva þær. Hafa 1,2 millj­ónir manns skrifað undir áskor­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár