Félagslegur bakgrunnur hafði mótandi áhrif

Í æsku flakk­aði Helga Rakel Rafns­dóttir á milli sam­fé­laga með ein­stæðri móður sinni. Hennar eigin bak­grunnur kveikti hjá henni ástríðu fyrir því að segja sögur af alls konar fólki og sleppa því að syk­ur­húða þær. Hún er með mörg járn í eld­inum, vinnur meðal ann­ars að nýrri heim­ild­ar­mynd um Emilíönu Torrini, milli þess að hún fer í brim­bretta­ferðir um fjar­læg lönd og lætur sig dreyma um að setj­ast að úti á landi þegar dætur hennar tvær verða eldri.

Félagslegur bakgrunnur hafði mótandi áhrif

Í árs­byrjun tók Helga Rakel Rafns­dóttir við stöðu for­manns WIFT á Íslandi, Samtaka kvenna í sjón­varpi og kvik­myndum, sem hefur að aðal­mark­miði að stuðla að fjöl­breytni í mynd­rænum miðlum með því að virkja konur, gera þær sýni­legri og styðja þátt­töku þeirra í öllum hlut­verkum í fram­leiðslu kvik­mynda og sjón­varps­efnis. Hún hefur sjálf verið virk á þeim vett­vangi frá stofnun hans árið 2006 en á þeim tíma var hún að finna sinn stað innan kvik­mynda­gerð­ar­list­ar­innar, heim­ild­ar­mynda­gerð­ina. „Ég mætti á stofn­fund WIFT en þá var ég að vinna að Kjötborg og var nýbúin að upp­götva að heim­ild­ar­mynda­gerð væri minn staður.“

„Þetta er fag sem ég finn mig í, því ég hef alltaf upp­lifað mig dálítið utan­gátta“

Kjötborg gerði Helga Rakel ásamt vin­konu sinni, Huldu Rós Guðna­dóttur. Myndin, sem vann meðal ann­ars til Eddu­verð­launa og Menn­ing­ar­verð­launa DV, fjallar um dag­legt líf bræðr­anna Gunnars og Krist­jáns, eig­enda kjör­búð­ar­innar Kjöt­borgar í Vesturbæ Reykja­víkur. „Ég hef sér­stakan áhuga á fólki sem velur sér ein­hverja allt aðra leið í líf­inu en þá sem er við­ur­kennd. Eins og á við um þá Kjöt­borg­ar­bræður. Þeir ráku þarna ein­hvers konar sam­fé­lags­þjón­ustu og aðstoð­uðu fólk sem félags­þjón­ustan var jafn­vel ekki að sinna. Það var ein­hver mann­gæska þarna sem mig lang­aði að halda á lofti. Mig langar að segja sann­leik­ann, eins og ég sé hann. Mig hafði alltaf langað til að segja sögur og þarna fann ég strax að ég brann fyrir þessu, að þetta væri eitt­hvað sem ég gat gert vel. Þetta er fag sem ég finn mig í, því ég hef alltaf upp­lifað mig dálítið utan­gátta. Félags­legur bak­grunnur minn gerir það líka að verkum að mig langar að segja ákveðna gerð af sögum. Ég er ekki mainstr­eam sjálf og mér finnst ekki að maður þurfi að vera það. Ég veit að það er til fullt af fólki sem finnst gott að heyra sögur sem eru um eitt­hvað annað en það sem haldið er á lofti í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum. Sögur úr raun­veru­leik­anum og úr líf­inu, sem er hvorki svart­hvítt né glans­mynd.“

Vill gera hefðbundnu kvennastörfin sýnilegri

WIFT er af reynslu Helgu Rakelar að dæma mik­il­vægur vett­vangur fyrir konur í kvik­mynda­gerð til að hitt­ast, ræða saman og standa saman út á við. „Þetta eru lif­andi sam­tök sem eru ennþá í mótun og það er auð­vitað mis­jafnt hvað er brýn­ast hverju sinni. Dögg Mós­es­dóttir var for­maður á undan mér og hún vann ótrú­lega gott og óeig­in­gjarnt starf. Undir hennar for­mennsku átti WIFT í sam­starfi við Kvik­mynda­mið­stöð og mennta­mála­ráðu­neytið til að þrýsta á um breyt­ingar, sem mætti tals­verðri and­stæðu meðal karl­kyns kvik­mynda­gerð­ar­manna.“

„Það að tala gegn því að konum verði gefið smá búst og jafn­vel for­skot er að afneita sög­unni.“

Ákveðinn sigur hafi verið unn­inn þegar mennta­mála­ráð­herra gaf út til­mæli um að jafna hlut kynj­anna í úthlutun úr Kvik­mynda­sjóði. Það, hversu mik­illi and­stöðu það mætti, sýni hvað er mik­il­vægt að halda þeirri umræðu lif­andi, fylgja ákvörð­un­inni eftir og vera vak­andi fyrir bakslagi. „Það að tala gegn því að konum verði gefið smá búst og jafn­vel for­skot er að afneita sög­unni. Það er afneitun á því að konur hafi lengi ekki fengið tæki­færin hingað til,“ segir hún.

Hennar per­sónu­legi metn­aður liggur hins vegar helst í því að fá fleiri inn í WIFT, konur á öllum stigum sjón­varps- og kvik­mynda­gerðar, ekki bara leik­stjóra, heldur líka þær sem eru í öðrum stöðum. Upphefja þurfi hefð­bundnu kvenna­störfin í kvik­mynda­gerð, störf á borð við bún­inga­hönnun, skriftu­starfið og gerva­hönnun.

Hikandi við að helga sig kvennasamstöðunni

Það er til­finn­ing Helgu Rakelar að íslenskar konur séu margar hverjar dálítið hik­andi við að helga sig kvenna­sam­stöð­unni, sem sé að mörgu leyti skilj­an­legt í litlu sam­fé­lagi þar sem allir þekkj­ast sem starfa innan ákveð­inna starfs­stétta, svo sem eins og í kvik­mynda­gerð. „Ég er svo sem algjör karl sjálf. Ég er afdala­bóndi í mér, á mikið af stráka­vinum og fún­kera vel með þeim. Mér finnst magnað að upp­lifa kvenna­sam­stöðu og hún er óend­an­lega mik­il­væg. En ég hef þörf fyrir sam­skipti við bæði kyn. Kvenna­sam­staða er frá­bært hug­tak og nauð­syn­legt en hún getur líka verið úti­lok­andi. Þetta er flókið. Kvenna­sam­staða getur verið fal­leg, öflug og nær­andi en hún má ekki snú­ast upp í að verða aggressíf. Þetta eru reyndar mjög áhuga­verðir tímar, finnst mér, því konur hafa gengið í gegnum mikla end­ur­skil­grein­ingu á öllu sem við­kemur því að vera kona. Ég veit nátt­úr­lega ekki alveg hvað ger­ist inni í hausnum á karl­mönnum en mér sýn­ist þeir margir vera í ein­hvers konar end­ur­skoðun líka. Eða ég vona það.“

„Mér fannst ég þurfa að sanna og sýna að ég gæti unnið mikið, þótt ég væri mamman.“

Helga hefur sinnt ýmsum störfum innan kvik­mynda­gerðar. Hún seg­ist finna það greini­lega að ennþá sé málum þannig háttað að karlar eigi frekar heim­an­gengt og geti frekar unnið langa daga en konur. „Það má segja að ég sé heppin, því ég er ekki ein­stæð móðir heldur á ég tvær dætur með tveimur mönnum. Ég á mjög gott sam­band við þá báða og þær eru jafn­mikið hjá þeim og mér. Það gerir mér kleift að lifa sjó­manns­lífi inn á milli. Ég vinn oft mjög mikið og er raunar nýbúin að taka þá ákvörðun að fara að vinna minna. Þetta varð ákveðin bar­átta hjá mér. Mér fannst ég þurfa að sanna og sýna að ég gæti unnið mikið, þótt ég væri mamman. Oft hef ég verið spurð á setti: „Hvernig get­urðu verið að vinna svona lengi? Áttu ekki börn?“ Þá langar mig nú stundum að spyrja á móti: „Spyrðu af því konan þín er heima núna að passa börnin þín?“

Félagslegur bakgrunnur hafði mótandi áhrif

Það er án vafa félags­legur bak­grunnur Helgu Rakelar sem ýtti undir ástríðu hennar fyrir því að segja sögur úr hráum raun­veru­leik­anum, án þess að reyna að syk­ur­húða eða fegra við­fangs­efnið. Hún ólst upp að miklu leyti hjá ein­stæðri móður og þær mæðgur fluttu mikið í æsku hennar. Helga kynnt­ist því mörgum og ólíkum sam­fé­lögum strax í barn­æsku. „Við flökk­uðum mikið og ég er alin upp á Flateyri, í Danmörku og Reykja­vík. Ég var alltaf að aðlaga mig, alltaf með gests­augað vak­andi. Ég var öll sumur á Flateyri og við mamma bjuggum þar líka í tvö ár. Þar lærði ég að búa í sam­fé­lagi með alls konar fólki sem kýs alla flokka, vinnur öll störf. Í svo­leiðis sam­fé­lagi standa allir saman, þeir verða að gera það til að geta fún­kerað saman. Svo var það Kaup­manna­höfn. Sól, pissu- og bjór­lykt á göt­unum og alls konar fólk er ein sterkasta minn­ingin mín þaðan. Og strætó­hljóðin fyrir utan glugg­ann á komm­ún­unni sem við bjuggum í á Vester­brogade.“

„Sól, pissu- og bjór­lykt á göt­unum og alls konar fólk er ein sterkasta minn­ingin mín þaðan.”

Þriðja upp­eld­is­stöðin var svo Reykja­vík, þar sem Helga Rakel fann betur en ann­ars staðar fyrir því að félags­leg staða hennar væri önnur en margra ann­arra. „Við fluttum í Vest­ur­bæ­inn, þar sem bjó mikið af vel stæðu fólki og ef ekki vel stæðu þá alla vega vel mennt­uðu eða af ein­hverjum ákveðnum ættum. Ég var fjórtán að verða fimmtán og bjó með mömmu minni hjá Félagi ein­stæðra for­eldra í Skerja­firði. Við bjuggum í tveggja her­bergja íbúð með engum hurðum. Kló­settið var frammi á gangi og það var tíkalla­sími á annarri hæð. Á þessum tíma eign­að­ist ég kærasta en vildi ekki vera með honum, því alltaf þegar hann hringdi í mig heyrð­ist píp í tíkalla­sím­anum sem mér fannst svo vand­ræða­legt.“

Þær áttu lítið fé en Helga Rakel vildi vera flott í tauinu eins og hinir krakk­arnir. Hún greip því til sinna ráða. „Það var rek­inn flóa­mark­aður í kjall­ar­anum, sem fjár­öflun fyrir Félag ein­stæðra for­eldra. Ég fór þangað og gróf upp Levi’s-galla­buxur og -peysu. Svo tók ég strætó í skól­ann með krökk­unum sem bjuggu í ein­býl­is­hús­unum í Skerja­firði og eng­inn sá að ég væri neitt öðru­vísi. Ég hef alltaf þurft að bjarga mér. Svona hlutir móta mann og ég er stolt af bak­grunni mínum og mömmu minni.“

Þarf aukna umræðu um hlutskipti aðstandenda

Helga Rakel var sautján ára þegar hún flutti að heiman og fór alfarið að sjá um sig sjálf. Pabbi hennar er tón­list­ar­mað­ur­inn Rafn Jónsson, sem lék meðal ann­ars með Grafík, Sálinni hans Jóns míns og Bítla­vina­fé­lag­inu, auk þess gaf hann út nokkrar sóló­plötur. Helga bjó alltaf inni á milli hjá pabba sínum og kon­unni hans. „Ég man að mér fannst mjög töff að pabbi átti bæði örbylgju­ofn og horn­sófa. Þau bjuggu í frekar hóg­værri íbúð á Rauð­ar­ár­stíg en mér fannst geggjað að ég ætti líka heim­ili þar sem þessir hlutir voru til, því á ákveðnum aldri í barn­æsku langar mann að vera eins og hinir. En ég fór samt alveg með vini mína heim. Ég skamm­að­ist mín aldrei fyrir heim­ili okkar mömmu.”

„Ég skamm­að­ist mín aldrei fyrir heim­ili okkar mömmu”

Þrátt fyrir að Helga byggi ekki alltaf hjá pabba sínum var hún náin honum og því varð það henni mikið áfall þegar hann lést árið 2004, eftir langa bar­áttu við MND-sjúk­dóm­inn. Fleiri nánir ætt­ingjar Helgu Rakelar hafa átt við heilsu­brest að stríða, svo hún þekkir það vel á eigin skinni hvernig heil­brigð­is­kerfið reyn­ist aðstand­endum lang­veikra. „Þetta er eitt af því sem hefur mótað mig hvað mest, að vera aðstand­andi lang­veikra. Það þekki ég á ólíkum sviðum, bæði and­lega og lík­am­lega,“ segir hún og lýsir þeirri skoðun að þörf sé á meiri umræðu í sam­fé­lag­inu um hlut­skipti aðstand­enda og þær afleið­ingar sem það getur haft að veita þeim ekki þá aðstoð sem þeir þurfa. „Samúðin er skilj­an­lega hjá þeim sem eru veikir en það markerar alla að vera aðstand­endur. Það getur reynst dýr­keypt og kostar fólk oft heils­una. Það er svo sann­ar­lega auð­velt að brenna út sem aðstand­andi, því það er mik­ill línu­dans sem mikil orka fer í.“

Þekkir hlut­skipti aðstand­endaHelga Rakel þekkir það vel á eigin skinni hvernig heil­brigð­is­kerfið reyn­ist aðstand­endum lang­veikra. Henni þykir þörf á meiri umræðu um hlut­skipti aðstand­enda og þær afleið­ingar sem það getur haft að veita þeim ekki þá aðstoð sem þeir þurfa.

Sjálf seg­ist hún oft þurfa að berj­ast fyrir því að halda sér réttum megin við lín­una, enda sé erfitt að eiga sér inni­halds­ríkt líf ef því er lifað fyrir ein­hvern annan. „Aðstand­endur þurfa oft að setja sitt líf á „hold“ og oft gera þeir það vilj­ugir, því þeim þykir auð­vitað vænt um þann sem er veikur og vilja allt fyrir hann gera og eiga jafn­vel erfitt með að horfast í augu við hvaða afleið­ingar þetta hefur. Ég vildi bara óska að það væri meiri umræða um þetta, því til­veru­réttur aðstand­enda er oft ein­hvern veg­inn minni en þeirra sem eru veikir.“

Mömmur mega fara einar í frí

Eitt af því sem Helga Rakel gerir til að fylla á ham­ingju­birgð­irnar í lík­am­anum er að sörfa. Hún er til­tölu­lega nýbúin að kom­ast að því hvað sú íþrótt er skemmti­leg, þótt það sé ekk­ert nýtt í hennar lífi að elska hafið. „Mér finnst ofsa­lega gott að vera úti á sjó. Ég vann á tíma­bili í fugla­skoð­un­ar­ferðum og þegar ég var lítil fór ég oft með afa á trill­unni. Ég verð átta­villt ef ég sé ekki sjó­inn. En það var vin­kona mín, Rut Sig­urð­ar­dóttir, sem dró mig fyrst á bretti, eitt skiptið þegar hún kom vestur á Flateyri. Ég varð strax heilluð. Það jafn­ast ekk­ert á við að ná öldu og berj­ast við hana. Og þetta er algjör hug­leiðsla og núvit­und – það þýðir ekk­ert að vera á bretti úti í sjó ef þú ert ekki í núinu! Þegar hún kom þekkt­umst við lítið en í dag erum við sörf-ævin­týra­vin­konur.“

„Ég verð átta­villt ef ég sé ekki sjó­inn.“

Hún seg­ist aldrei hafa fundið til hræðslu úti á sjó. „Nei, það er frekar að mér sé sagt að drulla mér í land, því mig langar alltaf lengra og lengra út.“

Hún segir sörfið hvorki meira né minna en eitt af því besta sem komið hafi fyrir hana á seinni árum, þó hún vilji taka fram að hún sé langt frá því að vera orðin góð í að sörfa. „Ég er svona rétt farin að geta staðið og „rædað“ aðeins, en ég er búin að kaupa mér blaut­bún­ing og nú er á stefnu­skránni að kaupa bretti.“

Saman hafa þær Helga Rakel og Rut ferð­ast bæði til Marokkó og Portúgal, gagn­gert til að sörfa. Helga Rakel segir þetta annað sem Rut hafi kennt henni: Að mömmur megi fara einar í frí. „Þegar við fórum til Marokkó hafði ég ekki farið til útlanda árum saman og ég hafði aldrei áður farið í strand­frí. Ég var alltaf að geyma það því ég vildi fara með stelp­urnar. En Rut benti mér á að það væri gott að gera hluti með börn­unum sínum en maður mætti líka fara einn. Það er í lagi að fara einn í göngu á Horn­strandir, pab­b­arnir mega fara á fót­bolta­leiki – og mömm­urnar mega líka fara í sörf­ferð. Það er bara allt í lagi. Vonandi kom ég bara betri mann­eskja til baka. En ég þurfti nú reyndar að semja við yngri dóttur mína þegar ég fór í seinni ferð­ina og lof­aði því að næst fengju þær að koma með.“

Líður hvergi betur en vestur á Flateyri

Ástina á sjónum fékk Helga Rakel án vafa frá Flateyri, þar sem hún dvaldi lang­dvölum sem barn, eins og fyrr segir. Þar var hún öll sumur, jól og páska, og bjó þar allt árið þegar hún var 11 og 12 ára. Enn í dag tengir hún sterkt við Flateyri og reynir að vera þar eins mikið og hún getur. Heimili afa hennar og ömmu, Hvilft, er enn í fjöl­skyld­unni og þau eru nokkur sem eiga húsið og halda því við. Síðustu ár hefur átt sér stað nokkuð mikil upp­bygg­ing á Flateyri, sem Helga Rakel lítur á sem jákvæða þróun. „Þetta er allt saman besta fólk, þau sem hafa keypt sér hús í bænum, list­hneigt, skap­andi og dríf­andi fólk sem þykir vænt um stað­inn og vill gera eitt­hvað fyrir hann. Miðað við allt og allt, og hvernig fór fyrir þorp­inu, þá er þetta mjög góð þróun. Ég skil þetta fólk líka mjög vel, þetta er fal­legur staður og þar er gott að vera.“

Sjálf er hún alltaf með það á bak­við eyrað að flytja þangað alfarið. „Ég er algjör bóndi í mér og helst langar mig að búa á bóndabæ, eiga jeppa og traktor og vera með geitur og kindur. Ég ætla að gera það þegar stelp­urnar mínar eru orðnar stórar. Í Reykja­vík er ég oft ein­mana, sér­stak­lega eftir að hafa verið fyrir vestan. Þótt ég eigi fjöl­skyldu í Reykja­vík og mjög marga góða vini líður mér allt öðru­vísi fyrir vestan. Þar get ég verið ein í viku án þess að finna fyrir ein­semd. Þá finn ég að ég er að verða dálítið skrýtin og dríf mig í að hitta ein­hvern í kaffi. Ég hrein­lega elska að vera þarna.“

Mynd um Emilíönu Torrini á teikniborðinu

Spurð að því hvað fram­tíðin beri í skauti sér stendur ekki á svörum og það er greini­lega margt fram undan á ólíkum sviðum. Það er kannski ekki skrýtið þegar við­mæl­and­inn er kona sem hefur lært leik­list og leik­hús­fræði í Kaup­manna­höfn, lesið almenna bók­mennta­fræði og er með meistara­gráðu í heim­ilda­mynda­gerð. Hún hefur mörg áhuga­mál og stefnir í margar áttir í einu. Stundum langar hana að leggja alfarið fyrir sig skriftir eða þátta­gerð fyrir útvarp, en hún var með pistla á RÚV síð­ast­lið­inn vetur um heim­ild­ar­myndir sem hún naut þess mjög að fram­leiða. Hún er þó ekki að yfir­gefa heim kvik­mynd­anna á næst­unni, ef marka má verk­efna­list­ann. Hún er að leggja loka­hönd á eina heim­ild­ar­mynd, vinna í hand­riti að leik­inni bíó­mynd í fullri lengd og að hefja vinnu að nýrri heim­ild­ar­mynd. „Ég er að klára Góða hirð­inn, sem er heim­ild­ar­mynd um Þorbjörn Stein­gríms­son á Garð­stöðum við Ísa­fjarð­ar­djúp og bíla­kirkju­garð­inn hans í Ögri. Myndinni má lýsa sem nokk­urs konar póst­korti frá þessum bíla­kirkju­garði, sem sumir sjá sem rusla­haug meðan aðrir sjá hann sem ævin­týri. Und­ir­text­inn er kannski sú spurn­ing af hverju rusl sé slæmt og hvort það sé í lagi að safna því, svo lengi sem við sjáum það ekki. Þetta hefur verið langt ferli en hún verður til­búin fyrir ára­mót,“ segir Helga Rakel.

„Myndinni má lýsa sem nokk­urs konar póst­korti frá þessum bíla­kirkju­garði, sem sumir sjá sem rusla­haug meðan aðrir sjá hann sem ævin­týri“

Und­ir­bún­ingur að næstu heim­ild­ar­mynd hennar er líka haf­inn en hún verður um tón­list­ar­kon­una Emilíönu Torrini. „Emilíana er ein af okkar fremstu lista­mönnum, hún er stór­kost­legur laga­höf­undur og flytj­andi og svo er hún svo skemmti­leg! Myndin fjallar um sköp­un­ar­ferlið og sam­vinnu hennar við belgísku hljóm­sveit­ina The Colorist Orchestra. Í for­sprökkum þess­arar hljóm­sveitar hefur Emilíana fundið sam­starfs­fé­laga sem eru full­komnir fyrir akkúrat þann stað sem hún er á núna, sem tón­list­ar­mann­eskja.“

Hún segir verk­efnið enn á þró­un­ar­stigi og því ekki tíma­bært að upp­ljóstra of miklu strax. Hins vegar er hún viss um að margir eigi eftir að geta speglað sig í und­ir­liggj­andi þemum mynd­ar­innar. „Eins og til dæmis hvað það getur stundum verið flókið að sam­hæfa það að vera skap­andi ein­stak­lingur og eiga fjöl­skyldu, að þurfa að skaffa og langa bæði til að skapa og sinna því sem er dýr­mæt­ast af öllu, börn­unum. Þetta er mjög skemmti­legt ferli og ég er búin að kafa ofan í höf­und­ar­verk Emilíönu og kynn­ast henni og sam­starfs­mönnum hennar vel. Það er sann­ar­lega mik­il­vægt að finna réttu aðil­ana til að skapa með, bæði í list­inni og líf­inu. Mig hefur lengi langað til að gera heim­ild­ar­mynd um lista­konur og nú er sá bolti far­inn að rúlla!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár