Aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi með atvinnurekendum: Miklar launahækkanir kalla á vaxtahækkun „þannig að hér verði sam­drátt­ur“

Þórarinn G. Pét­urs­son sagði á fundi hjá Félagi atvinnu­rek­enda í morgun að ef samið yrði um álíka miklar launa­hækk­anir í kom­andi kjara­lotu og gert var árið 2015 myndi Seðla­bank­inn lík­lega neyð­ast til að hækka vexti og fram­kalla slaka í hag­kerf­inu.

Aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi með atvinnurekendum: Miklar launahækkanir kalla á vaxtahækkun „þannig að hér verði sam­drátt­ur“

Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans, var ómyrkur í máli á fundi hjá Félagi atvinnu­rek­enda í morgun þar sem fjallað var um horfur í efna­hags­málum. 

Fram kom í máli Þórarins að ef samið yrði um álíka miklar launa­hækk­anir í kom­andi kjara­lotu og gert var árið 2015 myndi Seðla­bank­inn lík­lega neyð­ast til að hækka vexti og fram­kalla slaka í hag­kerf­inu. Þeir orsaka­þættir sem hindr­uðu að launa­hækk­anir færu beint út í verð­lagið árið 2015, t.d. inn­flutt verð­hjöðnun, væru ekki fyrir hendi í dag.  

„Þá er í raun og veru bara eitt eft­ir og það er að búa til nógu mik­inn slaka í þjóð­arbú­inu til þess að laun og verð­lag byrji að lækka,“ er haft eftir Þórarni á Mbl.is þar sem vitnað er í erindi hans og umræður sem fram fóru á fund­inum. „Það er eina tækið sem við höf­um að koma vöxt­un­um nógu mikið upp þannig hér verði sam­drátt­ur.“ 

Í glærum sem Þórarinn studd­ist við á fund­inum bendir hann á að inn­flutn­ings­verð hefur tekið að hækka eftir því sem áhrif geng­is­hækk­unar fjara út og alþjóð­leg verð­bólga eykst. Þá séu verð­bólgu verð­bólgu­vænt­ingar teknar að hækka á ný. 

Eins og Gylfi Zoëga, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, bendir á í skýrslu um kom­andi kjara­samn­inga bjugg­ust margir við því árið 2015 að verðbólga ykist í kjölfar almennra kjara­samn­inga. Það gerð­ist ekki, einkum vegna geng­is­styrk­ingar og lægra inn­flutn­ings­verðs í erlendum gjald­miðli árin 2015 og 2016 sem lækk­uðu verð á inn­flutn­ingi mælt í krónum. 

„Geng­is­hækk­unin varð einkum vegna mik­illar fjölgunar erlendra ferða­manna og einnig vegna þess að Seðla­bank­inn minnk­aði kaup sín á erlendum gjald­eyri sum­arið 2016. Launa­hækk­an­irnar og hækkun á gengi krónunnar höfðu samt þau áhrif að auka kostnað útflutn­ings­at­vinnu­vega svo að sam­keppn­is­staða versn­aði,“ skrifar Gylfi. „Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að erlendum ferðamönnum muni fjölga ört á næstu árum, gengi krónunnar styrkj­ast og verð­hjöðnun erlendis lækka verð á inn­fluttum vörum, þ.e. að verð­mæti þjóðar­fram­leiðslu auk­ist mikið. Þess vegna gæti verðbólga auk­ist ef samið yrði um miklar launa­hækk­anir.“ 

Gylfi og Þórarinn G. Pét­urs­son eru báðir nefnd­ar­menn í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans sem hefur það lög­bundna hlut­verk að stuðla að stöð­ugu verð­lagi. Athygli í fyrra þegar Þórarinn drakk úr bolla á blaða­manna­fundi þar sem blasti við mynd af Paul Volcker, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra Banda­ríkj­anna og áletr­unin “What would Volcker do?” Volcker er einna þekkt­astur fyrir að hafa hækkað vexti yfir 20 pró­sent til að fram­kalla sam­drátt og ná niður verð­bólgu í byrjun níunda ára­tug­ar­ins. 

„Við segj­um að það sé í hönd­um ann­arra hver fórn­ar­kostn­aður­inn verði til að halda verð­bólgu­mark­miðum á næstu miss­er­um. Það eru rík­is­valdið og vinnu­mark­aður­inn,“ sagði Þórarinn á fund­inum í dag og bætti því við að Seðla­bank­an­um væri full al­vara með þessu tali, þó að það væri frek­ar óskemmti­legt, enda væri það lög­bundið hlut­verk bank­ans að halda aftur af verð­bólgu og stuðla að verð­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár