Mynd: Heiða Helgadóttir

Það sem ég hef lært af því að eiga fatlaðar dætur

Bryndís Snæ­björns­dóttir á þrjú börn. Dætur hennar, sem eru 21 og 23 ára, eru með tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn RTD - Ribofla­vin tran­sporter deficiency. Þegar þær fædd­ust var ekk­ert sem benti til ann­ars en að þær væru heil­brigðar. Þær fóru hins vegar að missa heyrn­ina um fimm ára gamlar, síðan fóru þær að missa sjón­ina og þá jafn­vægi og hreyfi­færni. Þær eru báðar í hjóla­stól og þurfa aðstoð allan sól­ar­hring­inn við flest í dag­legu lífi.

1. Að það var engu lofað. Maður fær engin ábyrgð­ar­skír­teini í líf­inu en það fæð­ast alls konar börn og við eigum að sjálf­sögðu að taka þeim eins og þau eru. Ég er ekki viss um að ég hefði hugsað svona áður en ég eign­að­ist dætur mínar eða áður en þessi sjúk­dómur fór að láta á sér kræla en ég verð sífellt sann­færð­ari um að við eigum að mæta börn­unum okkar og öllum börnum eins og þau eru, styðja við þau og sýna þeim ástúð, ala þau upp og efla þau til þroska og hugsa um þau, reyna að stuðla að lífs­gleði þeirra, ham­ingju og lífs­gæðum, algjör­lega óháð því hvort þau eru fötluð eða með sjúk­dóm eða ekki. Þetta er í grunn­inn leið­ar­ljósið sem ég hef í líf­inu. Það var engu lofað og maður á ekki að taka neinu sem gefnu. Maður á að taka því sem að höndum ber og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár