Rétt­læt­is­kenndin og þörfin til að tjá sig Ísold sækir inn­blástur í eigin upp­lif­anir og lífs­reynslu sam­tíma­fólks. Þá er hún drifin áfram af rétt­læt­is­kennd og þörf­inni til að tjá sig um sam­fé­lagið og sam­ferða­fólk sitt. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Kann illa að meta hluti sem eru ekki raunverulegir“

Þrátt fyrir að hafa alltaf vitað að hún vildi gera kvik­myndir þorði Ísold Ugga­dóttir ekki í fyrstu atrennu að skrá sig í leik­stjórn­ar­nám. Hún þurfti fyrst að sanna fyrir sjálfri sér að hún ætti erindi í þetta fag. Á dög­unum var hún valin besti leik­stjór­inn í flokki alþjóð­legra kvik­mynda á kvik­mynda­há­tíð­inni Sundance en kvik­mynd hennar, Andið eðli­lega, hefur hlotið mikið lof erlendra gagn­rýnenda. Hér ræðir hún um list­ina, rétt­læt­is­kennd­ina sem drífur hana áfram og hvernig það er að vera kona í fagi þar sem karlar hafa hingað til verið við völd.

„Ef ég sé eitt­hvað sem truflar mig þá fæ ég löngun til þess að segja frá því,“ segir Ísold Ugga­dóttir leik­stjóri, en hún var á dög­unum valin besti alþjóð­legi leik­stjór­inn á kvik­mynda­há­tíð­inni Sundance, fyrir kvik­mynd sína Andið eðli­lega. Hún seg­ist á margan hátt drifin áfram af ákveð­inni rétt­læt­is­kennd. „Til að mynda varð ég vitni að hrun­inu á Íslandi úr fjarska og skynj­aði þá svo óstjórn­lega mikið órétt­læti. Í kjöl­far þess fannst mér ég þurfa að gera mynd sem tæki á þessu órétt­læti að ein­hverju leyti, sem fjall­aði þó að sama skapi um reiði og stolt konu sem kysi að fela fyrir umhverfi sínu hversu djúp­stæð áhrif hrunið hefði á hana. Þetta er lík­lega ein­hver þörf mín til þess að tjá mig um sam­fé­lag okkar og sam­ferða­fólk.“

Andið eðli­lega segir frá tengslum tveggja kvenna, ungrar íslenskrar móður sem sinnir vega­bréfa­eft­ir­liti á Kefla­vík­ur­flug­velli, leik­inni af Kristínu Þóru Har­alds­dóttur, og flótta­konu frá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár