Margra ára ólga Mikil ólga hefur verið í Venes­ú­ela um ára­bil eftir and­lát Hugo Chavez og hrun á verði á olíu, mik­il­væg­ustu útflutn­ings­vöru lands­ins. Nú er svo komið að 75 pró­sent lands­manna búa við nær­ing­ar­skort. Myndin er frá mót­mælum gegn rík­is­stjórn Niclás Maduros í borg­inni Merida. Mynd: Shutterstock

„Lífið gengur út á að reyna að lifa af“

Átökin á milli rík­is­stjórn­ar­innar í Venes­ú­ela og and­stæð­inga hennar hafa verið frétta­efni í meira en þrjú ár. Ástandið í land­inu er væg­ast sagt slæmt og býr meiri­hluta lands­manna við hung­ur­mörk. Ingi F. Vil­hjálms­son, blaða­maður Stund­ar­innar, bjó í Venes­ú­ela sem skiptinemi á árunum 1998 og 1999 þegar Hugo Chavez tók við völdum í land­inu. Hann ræðir hér við með­limi fjöl­skyld­unnar sem hann bjó hjá í Venes­ú­ela, „mömmu“ sína Blöncu og „bróður“ sinn Roy.

„Ég er ekki í beinni hættu þar sem sem ég bý í lok­aðri götu sem er gætt af örygg­is­vörðum allan sól­ar­hring­inn. Á nótt­unni passar örygg­is­vörður á mót­or­hjóli húsin. Ég lifi að hluta til sem fangi í eigin húsi; ég fer bara út ef ég verð að gera það: Til að kaupa mat, fara til læknis og slíkt. Ég hef það ennþá til­tölu­lega gott miðað við fátækara fólk sem margt hvert er að deyja úr hungri,“ segir Blanca Lamus Pirela, 63 ára gömul kona, sem býr í borg­inni Maracaibo í vest­ur­hluta Venes­ú­ela þegar hún ræðir um ástandið í Venes­ú­ela sem rambar á barmi borg­ara­styrj­aldar. 

Blóðug mót­mæli hafa geisað í Venes­ú­ela um meira en þriggja ára skeið þar sem and­stæð­ingum og gagn­rýnendum for­set­ans, Niclás Maduro, hefur lent saman við lög­reglu, her­menn og stuðn­ings­menn Maduros. Maduro er eft­ir­maður Hugo Chavez sem var for­seti Venes­ú­ela í fjórtán ár, frá 1999 til 2013, þegar hann …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífið í Venesúela

„Ég er fórnarlamb pólitískra ofsókna“
Viðtal

„Ég er fórn­ar­lamb póli­tískra ofsókna“

Yuri Karina Bouquette De Alvarado frá Venes­ú­ela er umsækj­andi um póli­tíska vernd á Íslandi. Hún og eig­in­maður hennar hafa fengið synjun við umsókn sinni. Hún lýsir því hvernig Venes­ú­ela er orðið að alræð­is­ríki og að hún hafi fundið það á eigin skinni eftir að hafa verið starf­andi í stjórn­ar­and­stöðu­flokknum Primero Justicia þar sem hún fékk borg­ar­stjóra í land­inu upp á móti sér.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár