„Robert Downey fékk sérstaka meðferð þegar hann sótti um uppreist æru“

Bergur Þór Ing­ólfs­son bendir á eitt sem aðskilur mál Roberts frá öðrum sem sótt hafa um upp­reist æru, sam­kvæmt lista yfir slíkar umsóknir sem dóms­mála­ráðu­neytið birti í gær. Í stað þess að honum væri synjað á þeim for­sendum að enn var ekki lið­inn nægi­lega langur tími frá því að refs­ingu lauk lá umsókn Roberts óvenju lengi í ráðu­neyt­inu.

„Robert Downey fékk sérstaka meðferð þegar hann sótti um uppreist æru“
Berjast fyrir rétt­læti Bergur ásamt eig­in­konu sinni, Evu, en fjöl­skyldan hefur tekið höndum saman í bar­átt­unni fyrir rétt­lát­ara umhverfi fyrir brota­þola kyn­ferð­is­glæpa­manna og gagn­særra kerfi. Mynd: Úr einkasafni

„Robert Downey fékk sér­staka með­ferð þegar hann sótti um upp­reist æru,“ segir Bergur Þór Ing­ólfs­son leik­stjóri og faðir stúlku sem Robert braut gegn þegar hún var á ung­lings­aldri. Bergur og dóttir hans, Nína Rún Bergs­dóttir, hafa ítrekað kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um ferlið sem lá að baki þeirri ákvörðun að veita Robert upp­reist æru, en upp­lýs­ing­arnar hafa verið og eru enn tak­mark­aðar.

Umsókn Roberts sker sig úr 

Í gær var hins vegar birtur listi yfir afgreiðslu umsókna um upp­reist æru, sem lagðar voru fram á tíma­bil­inu 1995-2017. Eftir að hafa legið yfir þessum upp­lýs­ingum átt­aði Bergur sig á því að mál Roberts Downey skar sig úr að einu leyti, því að afgreiðsla máls­ins tók mun lengri tíma en afgreiðsla ann­arra mála. Í því sam­hengi bendir Bergur á að þegar Robert lagði upp­haf­lega fram beiðni um upp­reist æru var ekki lið­inn nægi­lega langur tími frá því að refs­ingu lauk til að hægt væri að sam­þykkja beiðn­ina. 

Í hegn­ing­ar­lögum er kveðið á um að fimm ár séu liðin frá því að refs­ingu lauk áður en hægt er að veita mönnum sem hafa framið alvar­leg brot upp­reist æru. Þegar umsókn Roberts var skilað inn voru heldur ekki liðin fimm ár frá því að seinni dóm­ur­inn yfir honum féll, þar sem hann var dæmdur fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni, en var aðeins gert að greiða henni miska­bætur. 

Þegar umsókn Roberts var loks tekin til afgreiðslu í ráðu­neyt­inu hafði hins vegar nægur tími liðið til að hægt væri að veita honum umbeðna upp­reista æru, enda upp­fyllti umsóknin þar með öll lög­form­leg skil­yrði; að viss tími sé lið­inn frá því að dómur féll, að refs­ing hafi verið tekin út að fullu og við­kom­andi hafi sýnt af sér góða hegðun frá þeim tíma. Til stað­fest­ingar um góða hegðun eru lagðar fram upp­lýs­ingar úr saka­skrá og mála­skrá lög­reglu, auk þess sem tveir val­in­kunnir menn þurfa að votta um góða hegðun við­kom­andi. 

Meirihluti nefndarinnar gekk af fundinum 

Ekki liggur fyrir hvaða val­in­kunnu menn vott­uðu um góða hegðun Róberts, en málið var tekið til umræðu í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í gær. Þar voru gögn máls­ins lögð fram en full­trúar meiri­hlut­ans í nefnd­inni, að for­mann­inum und­an­skyldum, gengu af fund­inum áður en honum lauk, án þess að skoða með­mæla­bréfin sem fylgdu umsókn Roberts. 

Áður hafði nefndin fundað með ráðu­neyt­is­stjóra inn­a­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þar sem farið var yfir vinnu­ferlið sem liggur að baki því að fólki sé veitt upp­reist æra. Í kjöl­farið sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona og fyrr­ver­andi ráð­herra Vinstri grænna, að það hefði komið á óvart hvað ferlið væri vél­rænt og að því þyrfti að breyta. Engum hefði verið synjað um upp­reist æru, nema í þeim til­vikum þar sem lög­form­leg skil­yrði hefðu ekki verið upp­fyllt og tím­inn sem lið­inn væri frá brot­unum væri of stuttur.

Í sam­an­tekt RÚV á þeim upp­lýs­ingum sem dóms­mála­ráðu­neytið birti í gær kemur fram að sex nauð­garar, þrír barn­a­níð­ingar og þrír morð­ingjar eru á meðal þeirra 32 sem hafa fengið upp­reist æru frá árinu 1995. Á sama tíma hefur 54 verið synjað um upp­reist æru, öllum vegna þess að þeir upp­fylltu ekki form­skil­yrði.

Tímalínan 

Bergur birtir tíma­línu í mál­inu á Facebook-síðu sinni í kvöld. Þar segir hann meðal ann­ars: „Það er baga­legt að hent sé í mann ein­hverjum upp­lýs­inga­brotum í máli sem hefur jafn mikil áhrif á líf fjölda fólks eins og raun ber vitni.“

Nýlega voru und­ir­skriftir for­seta og ráð­herra á umsókn Roberts birtar. Áður hafði for­sæt­is­ráð­herra rang­lega sagt í við­tali við RÚV að hann hefði tekið við mál­inu eftir það fékk hefð­bundna með­ferð í ráðu­neyt­inu. Það var ekki leið­rétt fyrr en rúmum mán­uði síðar. 

Í gær var listi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins síðan birtur. „Þar sést að öll mál hafa verið afgreidd á innan við ári nema eitt. Mál Robert Downey. Það var afgreitt á tveimur árum. Málið er frá­vik frá eðli­legri afgreiðslu. Þess vegna er rétt­læt­an­legt að það mál sé skoðað sér­stak­lega í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og nefnd­ar­menn ættu ekki að forð­ast það eins og heitan eld­inn og ganga burt af fundi með lokuð augu eins og gerð­ist í dag,“ segir Bergur. 

Hann bendir á að: 

15. maí 2008 var Róbert Árni Hreið­ars­son dæmdur í þriggja ára óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir alvar­leg kyn­ferð­is­brot gagn­vart fjórum stúlkum. Um leið var hann sviptur lög­manns­rétt­indum í Hæsta­rétti.

Í dóms­orði kom fram að brota­vilji ákærða hafi verið ein­beittur og að hann hafi haldið brotum sínum áfram eftir að honum var kunn­ugt um að hann væri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn stúlku. Þá var litið til þess að hann var starf­andi lög­maður og ann­að­ist hags­muna­gæslu fyrir brota­þola í saka­málum og sinnti verj­enda­störfum í kyn­ferð­is­brota­málum. Þegar dómur féll lá fyrir dóms­beiðni í hér­aði að hann yrði skip­aður verj­andi manns sem var ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni. 

Í febr­úar 2009 hóf Róbert afplánun í fang­els­inu á Akureyri. 

Í maí 2010 var Róbert Árni dæmdur fyrir sams­konar brot gegn fimmtu stúlkunni. Hann var dæmdur til að greiða henni 300 þús­und króna miska­bætur en var ekki gerð nein refs­ing. 

Árið 2011 lauk Róbert afplánun, eftir að hafa setið af sér tvo þriðju af dómnum. 

Árið 2014 sótti hann um upp­reist æru. 

16. sept­em­ber 2016 veitti for­seti Íslands Robert Downey upp­reist æru, eftir að umsókn hans hafði verið afgreidd í ráðu­neyt­inu. 

Í júní 2017 fellst Hæsti­réttur á að Robert Downey end­ur­heimti lög­manns­rétt­indin á þeim for­sendum að hann hafi óflekkað mann­orð.

Umsókn Roberts lá lengi í ráðuneytinu

Bergur bendir einnig á að í skjal­inu sem dóms­mála­ráðu­neytið birti í gær kemur fram að umsóknum um upp­reist æru er synjað af ýmsum ástæðum, meðal ann­ars vegna þess að nægur tími frá því að refs­ingu lauk er ekki lið­inn.

Umsókn RobertsSkjáskot af lista ráðu­neyt­is­ins. Þarna má sjá að umsókn Roberts var lögð fram árið 2014 en ekki afgreidd fyrr en 2016.

Nokkrar umsóknir um upp­reist æru voru afgreiddar í ráðu­neyt­inu árið 2014, sama ár og Robert sendi sína umsókn inn. Tveimur var synjað um upp­reist æru, en ekki er hægt að sjá hversu lengi umsókn þeirra hafði legið inni í ráðu­neyt­inu. Auk Roberts lögðu þrír inn umsókn um upp­reist æru árið 2014. Tveir fengu umsóknir sínar sam­þykktar sama ár en einn beið til árs­ins 2015. Af öllum þeim sem hafa fengið upp­reist æru á þessu tíma­bili virð­ist eng­inn hafa beðið jafn lengi og Robert eftir afgreiðslu sinna mála. 

Um þetta segir Bergur: „Mál Roberts fær ekki neitun 2014 þótt ekki séu liðin fimm ár frá því að dómur er úttek­inn eins og lög kveða á um og virð­ist vera reglan um aðra umsækj­endur.

Hann fær heldur ekki neitun árið 2015 þrátt fyrir að tím­inn sé ekki lið­inn en hann lauk fang­els­is­vist árið 2011 og fimm ár þurfa að líða frá því að dómur sé að fullu út tek­inn.

Umsókn hans er látin liggja inni í ráðu­neyt­inu til árs­ins 2016 og for­seti skrifar undir upp­reist æru hans 16. sept­em­ber það ár.“

Óþolandi að upplýsingum sé haldið frá þeim 

Þá hvetur Bergur nefnd­ar­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að birta allar upp­lýs­ingar sem liggja fyrir í mál­inu, því það sé óásætt­an­legt fyrir brota­þola Roberts og aðstand­endur þeirra að þurfa að raða saman brot­unum á eigin spýtur, í til­raun til að skilja hvernig það gat gerst að maður með þessa brota­sögu fær upp­reist æru. 

Þarna sé um aug­ljóst frá­vik að ræða, sem hvorki dóms­mála­ráðu­neytið né stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafa komið auga á. Það sé mat brota­þola Roberts og aðstand­enda þeirra. 

„Við höfum upp á eigin spýtur og með hjálp fjöl­miðla þurft að raða saman þeim litlu brotum sem mjatlað er í okkur. Það er því óþol­andi að upp­lýs­ingum sé haldið frá okkur og krefj­umst þess að fá allar upp­lýs­ingar um málið fram í dags­ljósið, þar á meðal umsagnir og nöfn hinna val­in­kunnu. Ef stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd telur það brjóta jafn­ræð­is­reglu biðjum við um sömu upp­lýs­ingar um öll mál af sama toga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár