Frakkar vöknuðu í gærmorgun við eyðileggingu á götum eftir átök lögreglu og mótmælenda, umfangsmikil rán og eldsvoða víða um land. Mótmælagöngur vegna hækkandi framfærslukostnaðar höfðu farið út í „gróft“ ofbeldi.
Óeirðirnar brutust út eftir margra vikna mótmæli námsmanna og eru aðeins sex mánuðir þar til kosið verður um eftirmann Emmanuel Macron forseta.
Heilu göturnar í París „eru í rúst“, sagði borgarstjórinn Emmanuel Gregoire, eftir að hópar grímuklæddra ungra manna kveiktu í kyrrstæðum bílum og rændu verslanir.
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hafði fordæmt „gríðarlega hörku“ ofbeldisins. Hann sagði 1.200 hafa verið handtekna og 150 lögreglumenn slasast.
Það væri „kraftaverk að afleiðingarnar séu ekki verri“, sagði hann.
Fjöldi mótmælenda á reiki
Ofbeldið hófst í tengslum við mótmælagöngur vegna framfærslukostnaðar í höfuðborginni og öðrum borgum. Innanríkisráðuneytið sagði 550.000 manns hafa tekið þátt.
Verkalýðssambandið CGT, sem tók þátt í mótmælunum, sagði þátttakendur hafa verið 800.000.
1.200
Lögregla beitti táragasi og vatnsbyssum gegn mótmælendum sem köstuðu hlutum og beindu flugeldum að lögreglu.
Sautján ára drengur missti hægri höndina þegar handsprengja sem notuð er við að hemja mannfjölda sprakk í borginni Saint-Etienne í suðurhluta landsins.
Tæmdu verslanir
Á meðan mótmælin stóðu yfir og eftir að þeim lauk fóru hópar ungmenna um götur borga, lentu öðru hvoru í átökum við lögreglu, kveiktu elda og brutust inn í lokaðar verslanir sem þeir tæmdu.
Fjöldi verslana var rændur í París, Marseille, Nice, Nantes, Bordeaux, Limoges, Lille, Toulouse og Strasbourg. Þar á meðal voru stórmarkaðir, apótek, lúxusvöruverslanir, fataverslanir, gleraugnaverslanir, snyrtivöruverslanir og raftækjaverslanir.
Fréttamenn AFP í París sáu hópa um sex ungra manna ráðast skipulega á verslanir. Þeir báru grímur og hanska, aftengdu fyrst öryggismyndavélar og brutu síðan rúður til að komast inn.
550.000
Ránin bættust við eyðileggingu og skemmdarverk dagsins, en ráðhús voru meðal þeirra bygginga sem ráðist var á í nokkrum borgum.
Ráðhúsið í Limoges, sem er meira en 140 ára gamalt, eyðilagðist að mestu í eldi sem grímuklæddir mótmælendur kveiktu eftir að hafa brotist inn, að sögn æðsta embættismanns svæðisins. Einnig var brotist inn í ráðhús í Marseille og Lille og þau skemmd.
Lögreglustöð í Bordeaux varð einnig fyrir skemmdarverkum og í Lyon kveiktu mótmælendur í skrifstofu ferðamála.
Stjórnmálamenn bregðast við
Ofbeldið hefur vakið heimsathygli. Í Bandaríkjunum kenndi JD Vance varaforseti innflytjendamálum um óeirðirnar.
„Frjálslyndir Vesturlandabúar fluttu þriðja heiminn til Frakklands og annarra landa í nafni fjölbreytileika og samkenndar. Þeir hunsuðu grundvallarspurningar um aðlögun og samrýmanleika,“ sagði hann á X.
Macron forseti sagði að „þeir sem unnu skemmdarverk, réðust á opinberar skrifstofur eða fyrirtæki eða frömdu rán – jafnvel í ráðhúsunum okkar – verði sóttir til saka og þeim refsað“.
Stjórnarandstæðingar sem sækjast eftir að taka við af Macron í forsetakosningunum í apríl og maí hafa nýtt sér óreiðuna.
Marine Le Pen, frambjóðandi öfgahægrimanna, fordæmdi „óeirðaseggina“ og hélt því fram að flokkur Jean-Luc Melenchon, keppinautar hennar um forsetaembættið á ysta vinstri vængnum, hefði „réttlætt ofbeldið“.

„Þeir sem unnu skemmdarverk, réðust á opinberar skrifstofur eða fyrirtæki eða frömdu rán – jafnvel í ráðhúsunum okkar – verði sóttir til saka og þeim refsað“
Hún hét því að vernda Frakka „gegn ofbeldi öfgavinstrisins“.
Melenchon, sem hafði stutt mótmælin og námsmannamótmælin sem fóru á undan þeim með áberandi hætti, hvatti mótmælendur til að taka ekki þátt í ránum og sagði þau „stríða gegn aðferðum okkar“.
Gulvestungahreyfingin í Frakklandi, sem efndi til götumótmæla gegn ríkisstjórn Macron fyrir átta árum vegna fyrirhugaðra hækkana á eldsneytissköttum, hafði boðað til mótmæla „gulvestunga og ungmenna“ í gær.
Helsta umkvörtunarefnið var framfærslukostnaður, sem hefur meðal annars hækkað vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Það hefur átt þátt í því að verðbólga hefur aukist hratt í Evrópu og víðar.
„Við erum orðin þreytt á að þræla fyrir sultarlaun á meðan leigan hækkar stöðugt,“ sagði kennarinn Regine Monfroid við AFP í Strasbourg í austurhluta landsins.
En fleira vakti óánægju.

Óánægja umfram framfærslukostnað
Í París gengu tugir þúsunda um austur- og norðurhluta borgarinnar í einni stórri mótmælagöngu. Sumir hrópuðu „Allir hata lögregluna“ og „Macron, segðu af þér“.
Kamil Alahyan, 18 ára framhaldsskólanemi, sagðist mótmæla „af svo mörgum ástæðum – kosningunum sem fram undan eru árið 2027, stjórnmálamönnum sem ljúga og ofurríku fólki sem hefur sölsað undir sig sífellt meiri auð undanfarin tíu ár“.
„Við erum orðin þreytt á að þræla fyrir sultarlaun á meðan leigan hækkar stöðugt“
Nokkrir mótmælendur vísuðu til frönsku byltingarinnar árið 1789.
„Þetta er byltingin – við erum að taka Bastilluna!“ hrópuðu sumir í Marseille þegar þeir brutust inn á skrifstofur borgarstjórans.
Í borginni La Rochelle í vesturhluta landsins gengu mótmælendur á eftir skilti sem á stóð: „Bylting eða dauði.“
Í borginni Montpellier í suðurhluta landsins var stóru bláu skilti með orðunum „Fólkið mun sigra“ komið fyrir yfir torgi í miðborginni.
„Ríkisstjórnin skelfur, og það er rétt að hún geri það, því þegar franska þjóðin reiðist gefst hún aldrei upp,“ sagði Ryad Rani, leiðtogi samtaka framhaldsskólanema, LSU, við blaðamenn í París.




























Athugasemdir (1)