Ríkislögreglustjóri segist vera með tilvik til skoðunar er varðar hótanir gagnvart Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún upplýsti um það fyrir helgi í útvarpsviðtali á Bylgjunni að hún og fjölskylda hennar hefðu mátt sæta hótunum í starfi sínu og beygði af í miðju viðtali.
Í skriflegu svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn Heimildarinnar kemur fram að síðastliðin ár hafi það færst í aukana að efla þurfi öryggisráðstafanir „æðstu stjórnar“, eins og það er orðað. Mál Þorgerðar væri til skoðunar en enginn hefur verið handtekinn vegna þess.
Embættið svaraði ekki hvort grunur léki á að erlend öfl hefðu reynt að hafa afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um hvort hefja ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Samflokksmaður Þorgerðar, Jón Gnarr, sagði í viðtali við Heimildina á kosninganótt síðustu helgi að slíkar hótanir væru fyrir neðan allar hellur. „Þetta er ekki það fólk sem við erum. Við erum ekki svona fólk. Og við eigum ekki að …















































Athugasemdir