Framtíð Íslands. Slík innrömmun hefur verið beintengd við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik. Talað hefur verið um að hér verði línurnar dregnar í sandinn og framtíðarsýn Íslendinga um uppbyggingu samfélagsins ákvörðuð. Yngsta kynslóð kjósenda þarf að kynna sér málið vel. Um er að ræða risastóra ákvörðun sem mun hafa áhrif á forsendur samfélagsins á þeim tíma sem við erum að byggja upp líf okkar til frambúðar. Rödd unga fólksins má ekki týnast í umræðunni. Sem ungur maður í stjórnmálafræði sem er óákveðinn fyrir atkvæðagreiðsluna, ákvað ég að leita svara frá ungu fólki í Evrópu, enda eru sjónarmið þeirra þáttur í að fræðast um stöðu þeirra, lífsgæði og framtíðarsýn áður en ég tek ákvörðun. Ég ræddi því við fjóra einstaklinga, þvert á Evrópu, sem eiga það sammerkt að búa í ríkjum sem eiga aðild að Evrópusambandinu og spurði út í áskoranir sem þau …
Framtíð Íslands: Hver er reynsla ungs fólks í Evrópu?
Framtíð Íslands er framtíð unga fólksins. Í leit að svörum við því hvað aðild að Evrópusambandinu felur í sér fyrir daglegt líf ungs fólks sló ungur maður á þráðinn til ungmenna sem eiga það eitt sammerkt að vera búsett í Evrópusambandsríkjum.































Athugasemdir