Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök

Fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Ís­lands fer í gegn­um um­deild­ar grein­ing­ar og við­brögð við þeim. Þá er einnig rætt um lær­dóm hruns­ins. „Mér finnst menn hafa tek­ið á sig of mikla sök“

Framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands, Birni Brynjúlfi Björnssyni, finnst Viðskiptaráð Íslands hafa tekið á sig of mikla sök eftir hrunið. Hann telur stéttarfélög hafa náð markmiðum sínum og séu nú að seilast of mikið inn í umsvif hins opinbera auk þess sem hann telur fjárhagslegan ávinning af olíuleit mögulega veigameiri en ávinning af grænum áherslum; það þurfi í það minnsta að finna jafnvægi í þeim málum, að hans mati.

Viðskiptaráð er umdeild hugveita sem hefur birt margs konar greiningar sem hafa valdið töluverðri úlfúð í samfélaginu. Leiðtogi stéttarfélags hefur skrifað á opinberum vettvangi að Viðskiptaráð sé haldið þráhyggju þegar kemur að kjörum og réttindum opinberra starfsmanna, kennarar saka þá um að kunna ekki að reikna og umhverfisverkfræðingur bendir á að greining um sorphirðu hafi verið villandi og innihaldið rangar tölur. Björn Brynjúlfur stendur við allar greiningar Viðskiptaráðs og telur gagnrýnina oftast ómaklega.

Blaðamaður Heimildarinnar settist niður með Birni og fór í gegnum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    Viðskiptaráð er gríðarlega ofmetið fyrirbæri og ætti að halda sér sem mest saman. Ekkert, nákvæmlega ekkert af því sem Björn heldur fram í þessu viðtali stenst.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Í eignamesta hluta hverrar þjóðar er því gjarnan haldið fram að kapítalisminn sé ekki pólitík, allt sem andmælir honum eru stjórnmál, og ekki góð. Það að hafa alltaf rétt fyrir sér þar til að eitthvað fer úrskeiðis og kenna svo slæmu eftirliti um sem maður er alfarið á móti er svolítið tæpt. Verslunarráð er gott til síns brúks þegar maður gerir sér grein fyrir því hverra það er.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Mér kemur fyrst í hug" Powell memorandum" og hvert sú uppskrift hefur leitt Bandaríkin.
    Að hafa það nánast sem starfslýsingu að leysa upp og skemma límið sem heldur samfélagi saman til ágóða fyrir lítinn hóp, er svolítið sérstakur vettvangur.
    Það er fátt jafn gróðavænlegt til skamms tíma eins og að skapa samfélag þar sem allir líta á náungann sem ógn og keppinaut en ekki bara Jón eða Gunnu í næsta húsi.
    Að kalla Viðskiptaráð " hugveitu" er ofboðslega fallegt orð fyrir áróðurs fyrirtæki sem boðar fagnaðar erindi. En þeir sem starfa þarna virðast trúa þessu fagmaðar erindi blindandi, sem í mínum huga bendir til að við séum að horfa á " Cult".
    Það er nóg fyrir mig að horfa á USA til að átta mig á hvert eitruð einstaklinghyggja og takmarkalaus trú á skilvirkni og gróða leiðir.
    Langar okkur að búa í landi þar sem allir öfundast og hata hvern annan eins og þar?
    Viðskiptaráð er bara eins og Vísindakirkjan, Cult sem þjónar pínu litlum hóp á toppnum.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár