Trump færð meiri völd

Dómur Hæstiréttar Banda­ríkj­anna stað­festir að Banda­ríkja­for­seti megi reka emb­ætt­is­menn sjálf­stæðra stofn­ana og opnar leið­ina að hreins­unum í stjórn­kerf­inu. „Ringul­reið mun fylgja í kjöl­farið,“ skrif­aði Sonia Sotom­a­yor í sér­á­liti.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna efldi í dag völd Donalds Trumps for­seta til að reka með­limi óháðra rík­is­stofn­ana, en veitti Seðla­banka Banda­ríkj­anna vernd með því að koma í veg fyrir brott­rekstur seðla­banka­stjór­ans Lisu Cook.

Í úrskurði með sex atkvæðum gegn þremur hafn­aði íhalds­samur meiri­hluti rétt­ar­ins áskorun Rebeccu Slaughter, full­trúa demókrata í Alrík­is­við­skipta­nefnd­inni, og úrskurð­aði að Trump hefði vald til að reka „und­ir­menn sem fara með vald for­set­ans“.

Búist er við að ákvörð­unin hafi víð­tækar afleið­ingar, þar sem Trump hefur af hörku reynt að auka fram­kvæmda­vald sitt um leið og hann vinnur að því að umbreyta banda­rískri stjórn­sýslu og koma póli­tískum banda­mönnum fyrir í lyk­il­stöðum. Trump og fylg­is­menn hans hafa talað fyrir kenn­ingu um aukið vald for­set­ans, kenn­ing­una um ein­hliða fram­kvæmda­vald (e. unit­ary executive), sem felur í sér tak­marka­laus áhrif for­seta yfir fram­kvæmda­vald­inu.

Trump fagn­aði úrskurð­inum í færslu á sam­fé­lags­miðlum og sagði hann auka völd for­seta­emb­ætt­is­ins „á tíma þegar þess er mest …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár