Ekki vísa börnum á dyr

Lovísa Ingva­dótt­ir missti bestu vin­konu sína svip­lega þeg­ar þær voru að­eins fjór­tán ára gaml­ar. Hún fer yf­ir það hvernig hefði ver­ið hægt að styðja vina­hóp­inn bet­ur eft­ir áfall­ið. ​„Það hefði ver­ið gott ef ein­hver hefði kom­ið inn í skól­ann og lát­ið vita að við gæt­um leit­að til þeirra.“

Ekki vísa börnum á dyr

Lovísa Ingvadóttir beið eftir strætó að morgni 7. júní 2021 þegar hún mætti Öglu Arnars Katrínardóttur. Hún spurði hvar Embla, systir Öglu og ein af sínum allra bestu vinkonum, væri. Hún er dáin, svaraði Agla. Hún hefði svipt sig lífi þá um nóttina. Lovísa var þarna stödd með tvíburasystur sinni og svaraði því til að þetta væri ekkert fyndið. Hjarta hennar sökk og hún skildi ekki hvað Agla var að segja, en Agla endurtók fréttirnar. Í sama mund var strætisvagninn kominn og Agla kvaddi. „Þetta gerðist allt á örskömmum tíma. Ég hallaði mér upp að vegg og datt eiginlega, missti bara máttinn. Ég byrjaði að hringja á fullu í Emblu en það svaraði enginn. Allt í einu byrjaði að hellirigna og ég öskraði út í loftið: Þú varst búin að lofa mér!“ 

Strætisvagnaskýlið var við ráðhús Reykjavíkur og út kom stjórnmálamaður sem spurði …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörð­un að fækka sjálfs­víg­um

Hvert sjálfs­víg kost­ar sam­fé­lag­ið um 500 millj­ón­ir, en lít­ið hef­ur ver­ið lagt í for­varn­ir. Fyrstu að­gerða­áætl­un gegn sjálfs­víg­um var stung­ið of­an í skúffu. Næstu áætl­un fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unn­ið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­inn­ar. Guð­rún Jóna Guð­laugs­dótt­ir held­ur ut­an um verk­efn­ið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þeg­ar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi vilj­að fara frá mér. En ég get vel skil­ið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Sáu sárin sem hún faldi
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár