Olíuverð hækkaði og flest hlutabréf lækkuðu í morgun þegar ástandið í Mið-Austurlöndum magnaðist enn á ný með aðkomu Húta-uppreisnarmanna að stríðinu við Íran og fjárfestar óttuðust í auknum mæli að Bandaríkin myndu hefja landhernað.
Þegar átökin gengu inn í sína fimmtu viku jókst óttinn við að þau myndu breiðast út þegar Húta-uppreisnarmenn í Jemen sögðust á laugardag hafa skotið „flugskeyta- og drónahríð“ á hernaðarlega mikilvæg skotmörk í Ísrael.
Árásirnar vöktu áhyggjur af því að stríðið myndi breiðast út til Rauðahafsins, en Sádi-Arabía hefur beint stórum hluta olíuútflutnings síns þangað til að forðast Hormússund, en um 20 prósent af hráolíu og gasi fara þar um og hafa stjórnvöld í Teheran í raun lokað því.
Fréttirnar urðu til þess að olíuverð náði í morgun sínu hæsta stigi frá því fyrr í mánuðinum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu herferð sína gegn Íran. Brent-olía nálgaðist 117 dollara á tunnu áður en hún lækkaði …













































Athugasemdir