Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, sem heldur úti veðurvefnum Bliku.is, varar við röð lægða sem berast til Íslands undan veðurfyrirbærinu „Stóra bola“ sem hímir við Grænland og Norður -Kanada.
Þannig kemur laugardagslægð á morgun, minni þriðjudagslægð, skeinuhætt Skírdagslægð og enn önnur á föstudaginn langa. Tilkomumesta lægðin sé páskadagslægðin áætlaða.
Hann segir í Facebook-færslu allt geta breyst, en „líkur á viðsnúningi í átt til vorlegra veðurs fyrir páska eru hins vegar litlar, eiginlega afar litlar.“
Gul viðvörun er fyrir alla landshluta með hléum í dag og á morgun, aðra en Norðausturland.
Það verður hvöss suðaustanátt og snjókoma á höfuðborgarsvæðinu, með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum frá klukkan 18 á morgun til 22, samkvæmt viðvörun Veðurstofunnar, sem kallar þetta „gult ástand“.
Annars staðar skiptast á austan hríðir og norðvestan- eða norðanstormur eða -rok. Lítið skánar það næstu tíu daga.


„Það er engan vorbrag að sjá á kalda hvirflinum í háloftunum sem kenndur er við „Stóra bola“. Hann er líka á versta stað og enn er óþægilegur „leki“ frá honum um S-Grænland og í áttina til okkar,“ segir Einar og vísar til veðurfyrirbærisins Stóra bola, sem er kaldur hvirfill staðsettur fyrir vestan Grænland og í Norður-Kanada.
Þannig segir Einar að það verði „ströng suðvestan-vindröst“ suður og suðvestur í höfum næstu 10 daga, þar sem kalda loftið frá Kanada mætir hlýju og röku Atlanthafsloftinu. „Kjöraðstaður lægðanna og Ísland áfram skotskífa þeirra,“ segir Einar.
Einar segir að þeir sem ætli að ferðast um páskana muni þurfa að „áætla ferðadaga þegar dúrar aðeins á milli lægðanna“.
„Samgöngur munu vafalítið raskast ítrekað áfram og millilandaflugið þarf trúlega stundum einnig að sæta lagi,“ segir Einar, veðurfræðingur á Bliku.is.






























Athugasemdir