Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún myndi leggja fram frumvarp sem gerir kröfu um að innflytjendur lifi „heiðarlegu lífi“ ellegar eigi þeir á hættu að vera vísað úr landi.
Hægristjórn landsins, sem tók við völdum árið 2022 með loforðum um að taka hart á innflytjendamálum, reynir nú að koma í gegn fjölda umbóta á ýmsum sviðum í skyndi fyrir þingkosningar í september.
Nýja krafan myndi auðvelda afturköllun dvalarleyfa innflytjenda.
„Það er sjálfsagt að fara eftir lögum og reglum, en það hlýtur líka að vera sjálfsagt að við gerum okkar besta til að lifa ábyrgu lífi og skaða ekki landið okkar,“ sagði Johan Forssell, ráðherra innflytjendamála, á blaðamannafundi.
„Ef þér fyrirferst til dæmis að greiða skuldir þínar, ef þú ferð ekki eftir ákvörðunum sænskra yfirvalda, ef þú svindlar á bótakerfinu, ef þú svindlar til að fá sænskt dvalarleyfi ... þá áttu ekki rétt á að vera hér,“ sagði Forssell. …




























Athugasemdir