„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
Á fundi hjá Heritage Foundation Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og þing­flokkur Mið­flokks­ins sóttu fund hjá hug­veit­unni Heritage Foundation en upp­lýsa ekki um hver borg­aði ferð þeirra eða aðrar ferðir á erlenda við­burði eins og fund með Repúblikönum í Gauta­borg í fyrra.

„Þar var mynd af mér á for­síðu og ein­hverjar kenn­ingar um það að ein­hverjir hátt­settir Repúblikanar hefðu fengið styrk til að koma og hitta mig. Ég veit ekki hvaða menn þetta eru, herra for­seti, og annað eftir því, spunnir miklir þræðir, bull­þræðir.“

Þetta sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, í pontu á Alþingi 9. mars. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, hafði þá í ræðu vísað í umfjöllun Heim­ild­ar­innar frá því þremur dögum áður um tengsl flokks hans við erlendar hug­veitur og net sam­taka sem náið er MAGA-hreyf­ingu Donalds Trump og fjár­magnað af banda­rískum millj­arða­mær­ingum.

„Ég les um það í miðlum að flokkur hans, Mið­flokk­ur­inn, hafi farið á fundi og farið á nám­skeið hjá til­tek­inni hreyf­ingu vest­an­hafs og sú hreyf­ing er ekki síst fræg fyrir það að ýta undir upp­lýs­inga­óreiðu, ýta undir öfgar og ýta undir sundr­ungu í Evrópu,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Fyrir birt­ingu á umfjöllun …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Segðu mér hverjir vinir þínir eru og þá veit ég hver þú ert. Held að það eigi ágætlega við núna. Og til að skilja vinina er ágætt að skoða framtíðarsýn Heritage Foundation næstu 250 árin, sem er rit sem þeir gáfu út í janúar á þessu ári, það er ennþá dystópískara heldur en project 2025. Margir óttuðust að Saudi Arabia væri að styrkja moskur, sem er svosem alveg sjónarmið, en Heritage Foundation og Turningpoint USA eru alger spegilmynd öfgahyggju Sauda, trúarofstæki, kvenfyrirlitning og kvenhatur og alger fyrirlitning á öllu sem er ekki hvítt með typpi og á peninga.
    Ég myndi ekki vilja eiga svona vini.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár