Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkunin?

Stýri­vaxta­hækk­un ger­ir lán dýr­ari, dreg­ur úr eyðslu og fjár­fest­ingu og hæg­ir þannig á hag­kerf­inu til að ná nið­ur verð­bólgu. Vext­ir hafa þó ver­ið há­ir um nokk­urt skeið án þess að það ráði nið­ur­lög­um verð­bólg­unn­ar.

Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkunin?

Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti í fyrsta sinn síðan í ágúst árið 2023. Vextir bankans eru nú 7,5 prósent, sem er hækkun um 0,25 prósentustig.

Vaxtahækkunin í gær byggir á því að verðbólga er aftur komin í 5,2 prósent, undirliggjandi verðbólga hefur aukist og verðbólguvæntingar hafa hækkað. Bankinn segir að olíu- og hrávöruverð hafi hækkað vegna átaka við Persaflóa og að hætta sé á meiri verðbólguþrýstingi ef kjarasamningar opnast aftur síðar á árinu.

Meginástæður verðbólgunnar, eins og þeim er lýst núna, eru ekki bara of mikil innlend eftirspurn heldur líka hækkun opinberra gjalda um áramót, launahækkanir sem þegar er búið að semja um og ytri áhrif frá hrávörumörkuðum. Vextir vinna þó illa á slíku til skamms tíma: Þeir lækka ekki olíuverð, snúa ekki við gjaldskrárhækkunum hins opinbera og stöðva ekki sjálfkrafa launaskrið sem þegar er hluti af kjarasamningum.

En hvaða áhrif hefur hækkunin á íslenskan almenning og af hverju hafa háir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár