Sérstæðan
Höfundur, listrænn stjórnandi & danshöfundur: Rósa Ómarsdóttir Flytjandi & söngvari: Inga Huld Hákonardóttir Tónskáld: Sveinbjörn Thorarensen Sviðsmyndahönnun: Rósa Ómarsdóttir, Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katarina Blahutova & Owen Hindley Ljósahönnun: Katerina Blahutova Búningahöfundur: Karen Briem Dramatúrg: Anna María Tómasdóttir
Óvenjulegt og eftirminnilegt sviðsverk sem mun lifa lengi í taugakerfinu.
Á síðastliðnum árum hefur Rósa Ómarsdóttir skapað sér sérstöðu í íslensku sviðslistasenunni. Hún vinnur á mörkum listforma en dansinn er frumefnið. Síðasta stóra verkefni hennar var Molta sem sýnd var í Gerðarsafni fyrir tveimur árum. Sýningin var tilnefnd til Grímuverðlauna árið 2024 sem sýning ársins og Rósa hreppti verðlaunin sem danshöfundur ársins. Í Moltu beindi hún augum sínum að náttúrunni, moldinni og rótinni. Í Sérstæðunni leysir hún upp öll formföst efni og leiðir áhorfendur inn í óravíddir alheimsins og kjarna manneskjunnar.
En líkt og með önnur verk Rósu þá er ekki allt sem það sýnist. Samkvæmt lýsingu á Sérstæðunni stígur Inga Huld Hákonardóttir inn í hlutverk Veru sem syngur „um tilvist sína eftir að hafa yfirgefið líkamann og hlaðið sér upp á alnetið.“ Þar lifir Vera einungis sem rafslóði af hugsunum, minningum og tilfinningum. Inga Huld hefur sterka nærveru á leiksviðinu, sem þakið er vatni og umkringt myrkri, og gefur …
















































Athugasemdir