Pete Hegseth Talar á opn­un­ar­fundi Americas Counter Cartel Conference, eða Ráð­stefnu gegn fíkni­efna­hringum, í dag. Mynd: AFP

Stríðsmálaráðherrann sem skipti um skoðun

Pete Hegseth lýsti and­stöðu sinni við stríð með óljós mark­mið um stjórn­ar­skipti. Nú stendur hann að einmitt því.

Pete Hegseth, stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sem lýst hefur yfir and­stöðu sinni við „óskil­greind stríð“ og stjórn­ar­skipti, sækir nú fram gegn þeim sem gagn­rýna árás Donalds Trump for­seta á Íran og styður stríðs­á­tökin afdrátt­ar­laust.

Gagn­rýnendur segja mark­mið Írans­stríðs­ins illa skil­greind, rétt­læt­ingin síbreyti­leg og tímara­mm­inn opinn: Þetta eru átök af því tagi sem Hegseth barð­ist í – og for­dæmdi – en ver nú.

„Banda­ríkin eru að sigra – afger­andi, eyði­leggj­andi og mis­kunn­ar­laust,“ sagði Hegseth á mið­viku­dag. „Við erum rétt að byrja að veiða, sund­ur­lima, brjóta niður bar­áttu­þrek, gjör­eyða og ráða nið­ur­lögum getu þeirra.“

„Til fjöl­miðla og vinstri­manna sem hrópa um enda­laus stríð: Hættið þessu. Þetta er ekki Írak. Þetta er ekki enda­laust,“ sagði hann tveimur dögum áður. „Kynslóð okkar veit betur og það gerir þessi for­seti líka.“

Stríðið er fimmta stóra alþjóð­lega hern­að­ar­í­hlutun Banda­ríkj­anna undir stjórn Hegseth, en áður höfðu verið gerðar árásir á upp­reisn­ar­menn í Jemen, aðgerð gegn kjarn­orku­stöðvum Írans, árásir á meinta fíkni­efna­smygl­báta og áhlaup til að hand­sama Nicolas Maduro, leið­toga Venes­ú­ela.

Þótt banda­rískir her­menn hafi særst í áhlaup­inu á Maduro hafa aðgerð­irnar sem Hegseth hefur haft yfir­um­sjón með að mestu verið án mann­falla af hálfu Banda­ríkja­manna, þar til nú: Sex banda­rískir her­menn hafa fallið hingað til í Írans­stríð­inu.

Hegseth, 45 ára gam­all fyrr­ver­andi með­stjórn­andi á Fox News, gagn­rýndi fjöl­miðla í vik­unni fyrir að leggja áherslu á nei­kvæða þróun í stríð­inu og hélt því fram að „fals­frétt­unum yfir­sjá­ist“ heild­ar­myndin af vel­gengni Banda­ríkj­anna.

„Við höfum náð yfir­ráðum yfir loft­helgi og sigl­inga­leiðum Írans án her­manna á jörðu niðri ... En þegar nokkrir drónar kom­ast í gegn, eða hörmu­legir atburðir eiga sér stað, er það for­síðu­frétt,“ sagði Hegseth og sak­aði fjöl­miðla um að vilja „láta for­set­ann líta illa út.“

„Friður er markmið okkar“

Hegseth er marg­verð­laun­aður fót­göngu­liðs­for­ingi sem var í meira en 18 ár í þjóð­varð­lið­inu og barð­ist í Írak og Afganistan, en hefur engu að síður verið umvaf­inn hneyksl­is­málum.

Hann var gagn­rýndur í stað­fest­ing­ar­ferli sínu fyrir þing­inu vegna meintrar fjár­mála­óreiðu hjá góð­gerð­ar­sam­tökum fyrir upp­gjaf­ar­her­menn þar sem hann starf­aði áður, auk frétta af ofdrykkju og ásak­ana um kyn­ferð­is­brot gegn konu í Kali­forníu.

Nokkrum mán­uðum eftir að hann tók við emb­ætti varn­ar­mála­ráð­herra lenti Hegseth í hneyksl­is­máli sem tengd­ist árás­unum á Jemen.

Tíma­ritið The Atlantic afhjúpaði að aðal­rit­stjóra þess hefði óvart verið bætt við Signal-spjall þar sem Hegseth og aðrir emb­ætt­is­menn ræddu yfir­vof­andi aðgerð, og yfir­maður Pentagon sendi skila­boð um tíma­setn­ingu árásanna nokkrum klukku­stundum áður en þær áttu sér stað.

Annað deilu­mál spratt upp vegna árásar 2. sept­em­ber á mein­tan fíkni­efna­smygl­bát. Eftir að fyrsta árásin skildi eftir sig eft­ir­lif­endur, voru tveir þeirra drepnir í annarri árás – sem einn þing­maður sagði jafn­gilda árás á „skip­brots­menn“.

Í annarri umdeildri aðgerð undir stjórn Hegseth hefur fjöldi hátt­settra her­for­ingja, þar á meðal æðsti hers­höfð­ing­inn Charles „CQ“ Brown, verið rek­inn, oft með litlum eða engum opin­berum skýr­ingum.

Hegseth sagði í ræðu í des­em­ber að Pentagon „muni ekki láta trufl­ast af íhlut­un­ar­stefnu í þágu lýð­ræð­is­upp­bygg­ingar, óskil­greindum stríðum, stjórn­ar­skiptum, lofts­lags­breyt­ingum, vók sið­ferð­is­pré­dik­unum og gagns­lausri þjóð­ar­upp­bygg­ingu.“

„Við munum skapa fæl­ing­ar­mátt frá stríði. Við munum gæta hags­muna okkar. Við munum verja fólkið okkar. Friður er mark­mið okkar,“ sagði hann á Reagan National Defense Forum.

Innan við þremur mán­uðum síðar voru Banda­ríkin í stríði við Íran, átök sem hafa síðan breiðst út til ann­arra landa í Mið­aust­ur­löndum.

„Í 47 löng ár hefur útþenslusinnuð og íslömsk stjórn í Teheran háð grimmi­legt, ein­hliða stríð gegn Banda­ríkj­unum,“ sagði Hegseth í vik­unni.

„Við byrj­uðum ekki þetta stríð,“ sagði hann. „En undir stjórn Trump for­seta erum við að ljúka því.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið undanfarið ár