Markmið meirihlutans rýnd: Engir talmeinafræðingar en 143 ný leikskólapláss

Eng­in auk­in fjár­fram­lög hafa ver­ið veitt til skóla­bóka­safna þrátt fyr­ir vill­andi svar borg­ar­inn­ar um ann­að. Leik­skóla­pláss­um hef­ur fjölg­að. Nokk­uð hef­ur ver­ið skraf­að um lóða­brask en fá­ar ákvarðn­ir tekn­ar.

Borgarstjórnarmeirihlutinn sem var myndaður eftir að Framsókn sprengdi meirihlutann sem flokkurinn leiddi í febrúar í fyrra er nú að verða ársgamall. Þá tóku Samfylkingin, Píratar, Sósíalistaflokkur Íslands, Vinstri græn og Flokkur fólksins höndum saman og mynduðu nýjan meirihluta í borgarstjórn og kynntu nýjan málefnasamning.

Meðal markmiða var að hraða húsnæðisuppbyggingu, fjölga leikskólaplássum og bæta aðgengi að sérfræðingum, til dæmis talmeinafræðingum. Svigrúmið til að ná þessum markmiðum er þó takmarkað, enda liggur fyrir að meirihlutinn mun ekki sitja í tvö ár.

Hvað ef þessu hefur gengið eftir, nú þegar líður að kosningum?  Heimildin skoðaði markmið meirihlutans og hvernig hefur gengið að uppfylla samstarfsyfirlýsinguna sem kynnt var borgarbúum. Hér er farið yfir nokkur markmið stjórnarinnar en listinn er ekki tæmandi, né staða allra mála sem minnst er á í þessari greiningu.

1Enginn talmeinafræðingur sótti um

Í svörum Reykjavíkurborgar kemur fram að enginn talmeinafræðingur hefur verið ráðinn þrátt fyrir markmið …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár