Mæta innihaldsleysi með merkingu og dýpt

End­ur­tekn­ingar og stöðug efn­is­fram­leiðsla ein­kenna sam­fé­lags­miðla og gervi­greind og ratar síðan inn í lis­st­köpun. Því verður svarað með auk­inni áherslu á hand­verk og hið ófull­komna. Hér er rýnt í ríkj­andi strauma í menn­ing­unni og hvað ber helst á kom­andi ári.

Á sama ári og á fimmta hund­rað íslenskra auka­leik­ara eiga von á því að sjá sjálfa sig á hvíta tjald­inu í Ódysseifs­kviðu leik­stjór­ans Christophers Nolan, virð­ast fáar íslenskar kvik­myndir ætla að koma út. Von er á stór­stjörn­unni Patti Smith til lands­ins í maí og almyrkva á sólu verður fagnað með fjög­urra daga menn­ing­ar­há­tíð á Snæ­fells­nesi í ágúst. Björk mun gefa út nýja plötu og sýn­ing eftir hana verður sýnd á Lista­há­tíð í Reykja­vík.

Að mati popp­fræð­ings­ins Arnars Eggerts Thorodd­sen er ekki eins mikið að ótt­ast við gervi­greind­ina, í það minnsta á sviði tón­listar, og fólk vill stundum meina. Hann telur að bíó­húsin séu að víkja en menn­ing tón­leika og tón­list­ar­há­tíða lifi góðu lífi á Íslandi. Bók­mennta­fræð­ing­ur­inn Haukur Ingv­ars­son segir stöðu ljóðs­ins sterka og telur að íslenskar bók­menntir geti oft gefið inn­sýn í hvað sé að ger­ast í sam­fé­lag­inu. 

Heim­ildin rýnir í ríkj­andi strauma í menn­ing­unni, hvað sé á döf­inni á …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár