Endurkoma Trumps, vopnahlé og gervigreindarbóla

Trump fer mik­inn, páfa­skipti í Vatík­an­inu, vopna­hlé á Gaza og fjár­fest­ingar í gervi­greind. Heim­ildin tók saman það helsta í erlendum fréttum á árinu 2025.

Endurkoma Trumps, vopnahlé og gervigreindarbóla
Vopnahlé Íbúar á Gaza snúa heim en vopna­hléi var komið á í októ­ber. Mynd: AFP

End­ur­koma Trumps, páfa­skipti í Vatík­an­inu, vopna­hlé á Gaza og fjár­fest­ingar í gervi­greind eru meðal þess sem var í deigl­unni á árinu. Heim­ildin tók saman það helsta í erlendum fréttum. 

Trump snýr aftur

Þjóð­ern­is­hyggja og vernd­ar­stefna, fjölda­brott­vís­anir óskráðra inn­flytj­enda og nið­ur­rif deilda alrík­is­stjórn­ar­innar voru í for­grunni hjá Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

End­ur­komaTrump verður Banda­ríkja­for­seti á ný.

Frá end­ur­komu sinni í Hvíta húsið í jan­úar hefur Trump beint spjót­unum að and­stæð­ingum sínum, sent þjóð­varð­liðið til borga þar sem Demókratar eru í meiri­hluta, hrætt fjöl­miðla og barist gegn áætl­unum um fjöl­breyti­leika og inn­gild­ingu.

Hann hefur einnig hafið umfangs­miklar diplómat­ískar aðgerðir, með mis­jöfnum árangri. Meðal þeirra eru samn­ingar milli Austur-Kongó og Rúanda, Kambódíu og Taílands en engir gengu eftir. Óvissa ríkir um samn­ing Armeníu og Aserbaídsjan sem og samn­inga­við­ræður Egypta­lands og Eþíópíu. Betur hefur gengið í til­felli Ísraels og Hamas, Ísraels og Írans svo dæmi séu tekin.

Þjóð­varð­liðar í ChicagoFjöldi …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár