Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig í borginni

Stuðningur við Flokk fólksins og Framsókn hefur hrunið frá kosningum en Sjálfstæðis­flokkur og Samfylking hafa bætt við sig. Meirihlutinn er fallinn.

Oddviti
Oddviti Hildur Björns­dóttir er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks en orðrómur hefur verið uppi um að hún komi til með að fá mót­fram­boð í odd­vita­vali flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Sjálfstæðis­flokkurinn mælist stærsti flokkurinn í Reykjavík í nýjum Borgar­vita Maskínu. Samfylkingin er næst stærst og mælist enn yfir kjörfylgi, en fylgið hefur dalað frá því í sumar.

Samkvæmt niður­stöðunum, sem greint var frá í kvöld­fréttum Sýnar, mælist Viðreisn með 11,9 prósent, Miðflokkur 8,5 prósent og Píratar 6,4 prósent og Sósíalista­flokkurinn 5 prósent. Framsóknar­flokkur og Vinstri græn mælast með 4,4 og 4,2 prósent. 

Fylgi við Flokk fólksins hrynur niður í 2,6 prósent.

Könnun Maskína 2. desember 2025
Fylgi flokka í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt borgarvita Maskínu.
Sjálfstæðisflokkurinn
31,0%
Samfylkingin
25,5%
Viðreisn
11,9%
Miðflokkurinn
8,5%
Píratar
6,4%
Sósíalistaflokkurinn
5,0%
Framsókn
4,4%
Vinstri græn
4,2%
Flokkur fólksins
2,6%
Heimild: Maskína.

Samanlagt fylgi flokkanna sem mynda meirihluta í borginni er 43,5 prósent. Minni­hlutinn mælist með 47,3 prósent en Miðflokkurinn, sem stendur utan borgar­stjórnar, mælist í áður­nefndum 8,5 prósentum. Samanlagt fylgi minni­hlutans og Miðflokksins er því 55,8 prósent.

Könnunin var gerð dagana 20. til 26. nóvember og svarendur voru 1.034.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár