Þrír flokkar þar sem áður var einn Mið­flokkur, Sjálf­stæð­is­flokkur og Viðreisn tala fyrir mis­mun­andi sjón­ar­miðum á hægri vængnum sem áður rúm­uð­ust öll í Sjálf­stæð­is­flokknum einum.

Sundrung hægri manna þegar fylgið mælist mest

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn glímir við til­vist­ar­kreppu þar sem Mið­flokk­ur­inn krafsar í þjóð­ern­is­sinn­aða kjós­endur hans en Viðreisn í þá alþjóðasinn­uðu. Bókun 35, útlend­inga­mál og aðild að Evr­ópu­sam­band­inu eru meðal þess sem greinir þá að. Heim­ildin ræddi við kjörna full­trúa flokk­anna þriggja um átaka­lín­urnar, þróun fylg­is­ins og hvort flötur sé á sam­starfi í hægri stjórn í fram­tíð­inni.

Á Íslandi var lengi vel aðeins einn flokkur sem tald­ist hægra megin við miðju stjórn­mál­anna en und­an­farin kjör­tíma­bil hafa þeir verið þrír.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem hefur verið ráð­andi stjórn­mála­afl alla lýð­veld­is­sög­una og gott betur, hefur setið í öllum rík­is­stjórnum frá 1991 ef frá eru talin ráðu­neyti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Kristrúnar Frosta­dóttur. Lengi vel mátti hann ganga að því nán­ast sem vísu að fá vel yfir 30 pró­sent stuðn­ing en fékk sína verstu útreið í kosn­ing­unum sem óvænt var boðað til í lok árs í fyrra og fór í fyrsta sinn undir 20 pró­sent fylgi.

Nú mælist hann þriðji stærsti flokkur lands­ins. Nýir flokkar þrengja að gamla valda­flokknum úr tveimur áttum – annar fær stuðn­ing alþjóða­sinn­aðra og frjáls­lyndra en hinn þeirra þjóð­ern­issinn­uðu.

„Ég mundi segja að það séu þrír hægri flokkar á Íslandi; Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn líka,“ segir Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst. „Viðreisn er hægri flokkur á hinum efna­hag­spóli­tíska ás, á meðan Mið­flokk­ur­inn er hægri flokkur á hinum menn­ing­arpóli­tíska ás.“

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var víð­feðm kirkja sem allir þessir söfn­uðir gátu til­heyrt“

Hann segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn eitt sinn hafa brúað allan hægri væng­inn. „Innan hans voru í það minnsta þrjú megin stjórn­mála­öfl, það er að segja hóf­samur, frjáls­lyndur, mark­aðs­sinn­aður, kristi­legur flokkur, síðan þjóð­ern­isí­hald og loks frjáls­hyggju­víddin, sem einu sinni var sterk en hefur dofnað mikið að und­an­förnu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var víð­feðm kirkja sem allir þessir söfn­uðir gátu til­heyrt,“ segir Eiríkur Bergmann.

Síðan hafi það gerst að Viðreisn var stofnuð árið 2016 sem klofn­ingur frjáls­lyndra og alþjóða­sinn­aðra úr Sjálf­stæð­is­flokknum. „En svo verður líka til annar flokkur íhalds­megin, þjóð­ern­is­megin, við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem er Mið­flokk­ur­inn. Hann er auð­vitað klofn­ings­fram­boð út úr Fram­sókn­ar­flokknum, en ekki Sjálf­stæð­is­flokknum, en er engu að síður stað­settur þarna megin,“ segir Eiríkur Bergmann.

Mið­flokk­ur­inn var stofn­aður af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni eftir að hann laut í lægra haldi í for­manns­kjöri Fram­sókn­ar­flokks­ins og yfir­gaf flokk­inn. Telja við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar Mið­flokk­inn – þrátt fyrir nafn sitt – telj­ast til hægri flokka.

Eiríkur Bergmann Ein­ars­sonPró­fessor í stjórn­mála­fræði segir Ísland hafa lengi vel rekið strang­ari inn­flytj­enda­stefnu en nágranna­löndin.

„Þetta gerir það að verkum að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir fylgi í báðar áttir og stundum er eins og flokk­ur­inn viti ekki í hvorn fót­inn hann eigi að stíga,“ segir Eiríkur Bergmann. „Hann klemmist á milli þess­ara tveggja nýrri flokka sem eru að klípa af honum fylgi hvort sínum megin megin.“

Flokk­arnir þrír mæl­ast sam­an­lagt með tæp­lega 49 pró­senta fylgi en fengu 47,3 pró­sent í kosn­ing­unum í fyrra. Þá áttu þeir mögu­leika á að mynda hægri­st­jórn saman með minnsta mögu­lega meiri­hluta. En Viðreisn kaus að líta til vinstri og sæta færi á að vinna með öðrum Evr­ópusinn­uðum flokki, Sam­fylk­ing­unni.

Mið­flokk­ur­inn skaust upp fyrir bæði Sjálf­stæð­is­flokk og Viðreisn í nýj­ustu könnun Maskínu og mælist nú næst­stærsti flokkur lands­ins á eftir Sam­fylk­ing­unni. Dýfa Sjálf­stæð­is­flokks­ins að und­an­förnu virð­ist helst vera Mið­flokknum í vil, sem sést á því hvernig fylgi flokk­anna hreyf­ist sundur og saman eftir könn­unum.

Í nýj­ustu könnun Gallup mæld­ist svo Mið­flokk­ur­inn mæld­ist með 19,5 pró­sent fylgi, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 16,5 pró­sent og Viðreisn með 12,8 pró­sent.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár