Ríkislögreglustjóri segir upp störfum

Sig­ríð­ur Björk Guð­jóns­dótt­ir rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur lát­ið af embætti. „Ég met það svo að það sé ekki til hags­bóta fyr­ir lög­regl­una í heild að ég sé í stafni eft­ir um­fjöll­un síð­ustu vikna,“ seg­ir hún. Grím­ur Her­geirs­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­landi, tek­ur tíma­bund­ið við embætt­inu.

Ríkislögreglustjóri segir upp störfum

Í gær fundaði Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri með dómsmálaráðherra. Þar óskaði hún eftir því að láta af embætti ríkislögreglustjóra og „leitast þannig við að skapa frið um embættið og lögregluna í heild sinni. Ráðherra samþykkti beiðnina og tekur hún gildi næsta föstudag.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í dag. 

Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, tekur tímabundið við embættinu.

Sigríður Björk mun fara í verkefni er tengjast baráttu gegn kynbundnu ofbeldi hjá dómsmálaráðuneytinu. „Ég fæ nú tækifæri til að einbeita mér að þessum mikilvægu verkefnum næstu árin í dómsmálaráðuneytinu og mun því áfram þjóna dómsmálaráðherra af trúmennsku þótt í nýju hlutverki sé,“ segir hún í pistli til samstarfsfólks síns. 

Hagsmunir lögreglu ofar eiginhagsmunum

Í pistlinum segir hún um ákvörðunina: „ Ástæðurnar eru nokkrar. Sú stærsta er að ég met það svo að það sé ekki til hagsbóta fyrir lögregluna í heild að ég sé í stafni eftir umfjöllun síðustu …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár