Saleh Aljafarawi, 28 ára palestínskur blaðamaður, var skotinn til bana á Gaza einungis dögum eftir að Ísrael og Hamas náðu samkomulagi um vopnahlé.
Samkvæmt Al Jazeera var Aljafarawi skotinn til bana af meðlimum „vopnaðra borgaralegra sveita“ þegar hann fjallaði um átök í Sabra hverfinu í Gaza-borg sem áttu sér stað um helgina.
Fréttastofan Sanad sem Al Jazeera hefur umsjón með, hefur staðfest myndskeið sem blaðamenn og aðgerðasinnar birtu og sýndu lík Aljafarawi í vesti merktu Press eða fjölmiðill í skotti á vörubíl. Hans hafði verið saknað frá morgni sunnudags.
Aljafarawi varð þekktur fyrir myndbandsefni sem hann birti á meðan stríðinu á Gaza stóð yfir. Þá gerði hann einnig efni á YouTube, meðal annars tónlist sem hann flutti. Wear the Peace, fatamerki sem vill stuðla að mannréttindum, birti í dag myndband á Instagram af greftrunarathöfn Aljafarawi en þar sést fjöldi fólks fylgja blaðamanninum til grafar.
Athugasemdir