Utanríkisráðherra Palestínu: „Ef Ísrael kemst upp með þetta, getur það hver sem er“

Varsen Aghabekian utan­ríkis­ráðherra Palestínu segir að það ætti að hringja viðvörunar­bjöllum að ríki komist upp með að fylgja ekki alþjóða­lögum. Hún telur friðar­áætlun Bandaríkja­forseta einungs skref fram á við og að áætlunin verði að vera í samræmi við alþjóðalög.

Varsen Aghabekian
Varsen Aghabekian Segir mik­il­vægt að frið­ar­á­ætlun Trumps sé í sam­ræmi við alþjóða­lög. Mynd: Golli

„Ísland er okkur kært því Ísland var eitt fyrsta ríkið sem viðurkenndi sjálfstætt ríki Palestínu,“ segir Varsen Aghabekian utan­ríkis­ráðherra Palestínu og bætir við: „Ef að fleiri hefði gert það á sama tíma og Ísland hefði staðan kannski verið önnur í dag.“

Aghabekian hélt erindi á árlegri friðar­ráðstefnu Höfða friðar­seturs sem fer fram í Veröld húsi Vigdísar í Háskóla Íslands. Í erindinu lagði hún áherslu á mikilvægi alþjóða­laga sem hún sagði hafi verið virt að vettugi undan­farin ár. Skortur á beitingu þeirra telur hún eina ástæða hörmunganna í Palestínu.

„[Alþjóðalög] ættu að koma í veg fyrir hernámið sem ég hef lifað við í mörg ár,“ sagði ráðherrann og benti á að það fari eftir því hvar í heiminum fólk sér hvort að alþjóðalög séu virt eða ekki. 

Ekkert réttlætti það sem hefur átt sér stað á Gaza. Þá ætti aðgerða­leysi gagnvart Ísrael – sem hafi brotið alþjóðalög – …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár