Trump hótar að beita uppreisnarlögunum
Sendir vopnað lið í borgir Demókrata Forseti Banda­ríkj­anna alrík­is­væddi þjóð­varð­liðið í Kali­forníu og ákvað að senda það til Portland í Oregon, gegn vijla rík­is­stjóra beggja ríkja. Mynd: Jim WATSON / AFP

Trump hótar að beita uppreisnarlögunum

Banda­ríkja­for­seti segir að Chicago sé „stríðs­svæði“ og að „Portland sé að brenna til grunna“ með „upp­reisn­ar­menn út um allt“.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ist vera reiðu­bú­inn að beita upp­reisn­ara­lög­unum, Insurrection act, sem heim­ila for­seta Banda­ríkj­anna að senda her­inn til að kveða niður „ofbeld­is­fulla upp­reisn“, í vax­andi aðgerðum hans gegn borgum sem stjórnað er af demókrötum.

„Við höfum upp­reisn­ara­lög af ástæðu. Ef ég þyrfti að beita þeim myndi ég gera það,“ sagði Trump við frétta­menn í for­seta­skrif­stof­unni, á sama tíma og Illinois og Oregon, ríki undir for­ystu demókrata, gripu til laga­legra aðgerða til að koma í veg fyrir að for­set­inn sendi þjóð­varð­liðið inn í borg­irnar Chicago og Portland.

„Ef fólk væri drepið og dóm­stólar eða rík­is­stjórar eða borg­ar­stjórar væru að tefja okkur, þá myndi ég að sjálf­sögðu gera það.“

Upp­reisn­ar­lög­unum var síð­ast beitt árið 1992 þegar mót­mæli íbúa í Los Angeles eftir sýknu­dóm vegna lög­reglu­of­beldis gegn Rodney King, sem náð­ist á mynd­band, fóru úr bönd­unum. Þeim var sex sinnum beitt á sjö­unda ára­tugnum vegna rétt­inda­bar­áttu blökku­manna og tvisvar á níunda ára­tugnum.

Þjóðvarðliðar frá Texas til Chicago

Yfirvöld í Illinois höfðu höfðað mál til að reyna að koma í veg fyrir liðs­flutn­inga til Chicago, en dóm­ar­inn April Perry, sem var skipuð í emb­ætti af Joe Biden, for­vera Trumps og demókrata, neit­aði að gefa út taf­ar­laust lög­bann á aðgerð­ina.

Hún ákvað að halda dóm­þing um málið á fimmtu­dag og bað stjórn­völd um að upp­lýsa dóm­stól­inn og veita frek­ari upp­lýs­ingar.

Deilan magn­að­ist eftir að upp komst að Texas, þar sem repúblikanar eru við völd, hygð­ist senda 200 af alrík­is­væddum þjóð­varð­liðum sínum til Illinois, sem reitti JB Pritzker, rík­is­stjóra demókrata, til reiði.

„Þeir ættu að halda sig í fjand­anum frá Illinois,“ sagði Pritzker.

Hann sak­aði einnig alrík­is­full­trúa inn­flytj­enda­mála sem stóðu fyrir áhlaupum í Chicago um „fanta­skap,“ „óhóf­lega vald­beit­ingu“ og ólög­lega varð­halds­vistun banda­rískra rík­is­borg­ara.

Trump ali á „ótta og ringulreið“

Ummæli Trumps um hin alda­gömlu upp­reisn­a­lög komu aðeins nokkrum mín­útum eftir að Pritzker var­aði við því að Trump væri vís­vit­andi að ýta undir „stig­vax­andi ofbeldi“ til að not­færa sér það sem yfir­skin fyrir beit­ingu neyð­ar­heim­ilda.

„Rík­is­stjórn Trumps fylgir hand­riti: að valda glund­roða, skapa ótta og ringul­reið“
JB Pritzker
Rík­is­stjóri Illinois

„Rík­is­stjórn Trumps fylgir hand­riti: að valda glund­roða, skapa ótta og ringul­reið, láta frið­sama mót­mæl­endur líta út fyrir að vera múgur með því að skjóta á þá gaskúlum og táragas­hylkjum,“ sagði Pritzker á blaða­manna­fundi.

„Hvers vegna? Til að skapa yfir­skin fyrir því að beita upp­reisn­a­lög­unum svo hann geti sent her­inn til borg­ar­innar okkar.“

Landamæra­lög­regla í ChicagoVopnuð lög­regla hand­tekur ein­stak­ling eftir að íbúar í Brighton Park-hverf­inu í Chicago tókast á við landamæra­verði og aðra lög­reglu­menn á bens­ín­stöð eftir að full­trúar Útlend­inga- og tolla­eft­ir­lits­ins (ICE) hand­tóku að sögn óþekktan mann í bíl sínum í Chicago, Illinois, á laug­ar­dag. Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sem byggði kosn­inga­bar­áttu sína á lof­orði um að vísa fjölda inn­flytj­enda úr landi, hefur hvatt yfir­völd til að vera harð­ari í aðgerðum sínum í því skyni að ná mark­miði sínu um eina milljón brott­vís­ana á ári, sem mikið hefur verið fjallað um.

Bandaríkjamenn verði ekki hersetnir

Illinois-fylki í Banda­ríkj­unum, þar sem Demókra­ta­flokk­ur­inn er við völd, höfð­aði í dag mál til að koma í veg fyrir að Donald Trump for­seti sendi þjóð­varð­liða til Chicago.

Máls­höfð­unin kemur degi eftir að alrík­is­dóm­ari í Oregon kom tíma­bundið í veg fyrir að for­set­inn, sem er repúblikani, sendi her­menn til Portland, stærstu borgar fylk­is­ins, sem hluta af aðgerðum sínum gegn glæpum og óskráðum inn­flytj­endum.

Um helg­ina heim­il­aði Trump að 700 þjóð­varð­liðar yrðu sendir til Chicago þrátt fyrir and­stöðu kjör­inna leið­toga demókrata, þar á meðal borg­ar­stjór­ans og JB Pritzker rík­is­stjóra.

Í máls­sókn sem höfðuð var fyrir alrík­is­dóm­stóli í Illinois sök­uðu Kwame Raoul, rík­is­sak­sókn­ari fylk­is­ins, og lög­maður Chicago-borgar Trump um að nota banda­ríska her­menn „til að refsa póli­tískum and­stæð­ingum sínum“.

„Banda­ríska þjóðin, óháð búsetu, á ekki að þurfa að búa við þá ógn að vera her­setin af Banda­ríkja­her, sér­stak­lega ekki bara vegna þess að leið­togar borgar þeirra eða fylkis eru ekki for­set­anum þókn­an­legir,“ sögðu þeir.

„Langt frá því að stuðla að almanna­ör­yggi á Chicago-svæð­inu,“ skrif­uðu þeir, „hafa ögrandi og duttl­unga­fullar aðgerðir“ Trumps „ógnað almanna­ör­yggi með því að vekja upp reiði almenn­ings.“

„Illinois fer fram á að dóm­stóll­inn lýsi þessar aðgerðir ólög­legar og banni þær, bæði taf­ar­laust og til fram­búðar,“ bættu þeir við.

Segja Chicago „stríðssvæði“

Kristi Noem, ráð­herra heima­varna, hefur varið áætl­un­ina um að senda her­menn til Chicago og haldið því fram að þriðja stærsta borg Banda­ríkj­anna sé „stríðs­svæði“.

Pritzker svar­aði á CNN og sak­aði repúblik­ana um að reyna að „skapa stríðs­svæðið, svo þeir geti sent inn enn fleiri her­menn.“

Í CBS-könnun sem birt var á sunnu­dag kom fram að 58 pró­sent Banda­ríkja­manna eru and­víg því að senda þjóð­varð­liðið til banda­rískra borga.

En Trump, sem tal­aði í síð­ustu viku um að nota her­inn í „stríði innan frá“, sýnir engin merki um eft­ir­gjöf.

Á sunnu­dag hélt hann því rang­lega fram að „Portland sé að brenna til grunna. Það eru upp­reisn­ar­menn út um allt.“

„Stjórnskipunarréttur, ekki herlög“

Herferð Trumps um að beita hernum á heima­velli varð fyrir skakka­föllum á laug­ar­dag í Portland þegar alrík­is­dóm­stóll úrskurð­aði að beit­ingin þjóðarð­liðs­ins væri ólög­leg.

Trump hefur ítrekað kallað Portland „stríðs­hrjáða“, en Karin Immergut hér­aðs­dóm­ari setti tíma­bundið bann við liðs­flutn­ingum og sagði að „ákvörðun for­set­ans væri ein­fald­lega ótengd stað­reyndum.“

„Þetta er þjóð stjórn­skip­un­ar­réttar, ekki her­laga,“ skrif­aði Immergut, sem var skipuð af Trump.

Þrátt fyrir að ein­staka árásir hafi verið gerðar á alrík­is­lög­reglu­menn og eignir í Portland, tókst stjórn­völdum ekki að sýna fram á „að þessi til­vik ofbeldis hafi verið hluti af skipu­lagðri til­raun til að steypa rík­is­stjórn­inni í heild sinni,“ sagði hún.

Trump-stjórnin er að áfrýja úrskurð­inum, sagði Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, við frétta­menn á mánu­dag.

„Með fullri virð­ingu fyrir þeim dóm­ara, þá tel ég að álit hennar sé ótengt raun­veru­leik­anum og lögum,“ sagði Leavitt. „Við erum mjög örugg um laga­lega heim­ild for­set­ans til að gera þetta.“

„For­set­inn vill tryggja að alrík­is­bygg­ingar okkar og eignir séu vernd­aðar og það er nákvæm­lega það sem hann er að reyna að gera,“ sagði hún.

Eftir spennu­á­stand í nokkra daga í Chicago braust út ofbeldi á laug­ar­dag þegar alrík­is­lög­reglu­maður skaut öku­mann sem heima­varna­ráðu­neytið sagði hafa verið vopn­aðan og ekið á eitt af öku­tækjum þeirra.

Illinois og Oregon eru ekki fyrstu ríkin til að höfða mál vegna beit­ingar Trump-stjórn­ar­innar á þjóð­varð­liði.

Kali­fornía höfð­aði mál eftir að Trump sendi her­menn til Los Angeles fyrr á þessu ári til að kveða niður mót­mæli sem brut­ust út vegna aðgerða gegn óskráðum inn­flytj­endum.

Hér­aðs­dóm­ari úrskurð­aði aðgerð­ina ólög­lega en málið er enn að feta sig eftir dóms­stigum.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár