„Gervigreindin hefur aðeins augun fyrir aftan hnakkann“

Fag­ur­fræði gervi­greind­ar­innar byggir á formum og hug­myndum sem þegar eru fyrir hendi, að sögn pró­fess­ors. Vin­sældir hennar á meðal Donalds Trump og stuðn­ings­manna hans vekja athygli.

„Gervigreindin hefur aðeins augun fyrir aftan hnakkann“
Gervi­greind­ar­mynd af Donald Trump For­set­inn birti þessa mynd af sér á sam­fé­lags­miðlum þegar rætt var um hver ætti að verða næsti páfi kaþ­ólsku kirkj­unnar.

Mikið af því mynd­máli sem gervi­greindin hefur úr að moða nýt­ist öfga­hægriöflum eins og MAGA-hreyf­ingu Donalds Trump. Fag­ur­fræði hennar byggir þannig á formum og hug­myndum sem nú þegar eru til.

Þetta segir Guð­mundur Oddur Magn­ús­son, eða Goddur, fyrr­ver­andi pró­fessor við Lista­há­skóla Íslands. „Gervi­greindin hefur aðeins augun fyrir aftan hnakk­ann,“ segir hann. „Hún vinnur bara með það sem er, getur sett það í nýtt sam­hengi og séð frá nýju sjón­ar­horni en getur ekki séð fram fyrir sig. Hún vinnur bara með form og hug­myndir sem eru þegar fyrir hendi.“

Hann segir þetta í raun og veru vera skil­grein­ing­una á póst­módern­isma, lista­stefnu sem hóf inn­reið sína á 20. öld­inni og blandar saman fyrri stílum á sama tíma og stórum kenn­ingum og hug­mynda­fræði er hafnað.

„Það er eng­inn eins frum­legur og hann telur sig vera

Goddur segir gervi­greind­ina þannig vera jafn­öfluga og póst­móderníska lista­menn. …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár