Tekjuhæstu karlarnir eignuðust átta milljörðum meira en tekjuhæstu konurnar

Tíu tekju­hæstu karlar lands­ins eign­uð­ust sam­an­lagt átta millj­örðum meira en tíu tekju­hæstu kon­urnar. Tuttugu pró­sent allra á Hátekju­list­anum eru konur í ár. Þrjár konur kom­ast á lista yfir tíu tekju­hæstu ein­stak­linga lands­ins.

Tekjuhæstu karlarnir eignuðust átta milljörðum meira en tekjuhæstu konurnar

Þegar blaða­menn Heim­ild­ar­innar unnu að gerð Hátekju­list­ans var farið yfir skatta lands­manna. Eitt varð aug­ljóst strax í upp­hafi: kven­mannsnöfn þýddu sjaldan hátekjur.

Heim­ildin tók saman kynja­hlut­fall þeirra sem komust á list­ann í ár. Tuttugu pró­sent eru konur. Hlut­fallið er nokkuð svipað og í fyrra en það var þá nítján pró­sent. Ald­urs­for­seti list­ans er kona og sömu­leiðis yngsti ein­stak­ling­ur­inn. Þrjár konur eru á lista yfir efstu tíu tekju­hæstu ein­stak­linga lands­ins. 

Helga S. Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­andi Samherja hf., er í öðru sæti á list­anum með rúma 5,6 millj­arða í heild­ar­árs­tekjur. Súsanna Sig­urð­ar­dóttir fjár­festir er í fimmta sæti með rúm­lega 3,2 millj­arða og Ingunn Sig­urð­ar­dóttir hár­greiðslu­meist­ari situr í átt­unda sæti með ríf­lega 1,6 millj­arða. Í heild­ina eru tólf manns í efstu sætum list­ans með yfir millj­arð í heild­ar­árs­tekjur. 

Sam­an­lagðar heild­ar­árs­tekjur tíu tekju­hæstu kvenna lands­ins eru rúmum 8,2 millj­örðum lægri en sam­an­lagðar heild­ar­árs­tekjur tíu tekju­hæstu karla lands­ins. 

Hlutfall kvenna á list­anum sveifl­ast nokkuð …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár