Deilur í Sósíalistaflokknum: Vefsíða Vorstjörnunnar og félagatal yfirtekin

Sara Stef. Hildar­dóttir, gjaldkeri Vorstjörn­unnar sem er styrktar­sjóður fjár­magnaður af Sósíalista­flokknum, segir að vefsíða sjóðsins hafi verið tekin yfir í gegnum Google-aðgang flokksins, sem ný framkvæmda­stjórn flokksins hefur aðgang að. Sæþór Benjamín Randalsson, nýr formaður hennar, segir málið viðkvæmt og þörf á aðstoð lögfræðings.

Sósíalistaflokkur Íslands
Sós­í­alista­flokkur Íslands Vefur styrkt­ar­sjóðs flokks­ins lenti undir stjórn ein­hvers sem hefur aðgang að net­fangi flokks­ins, sam­kvæmt lýs­ingum gjald­kera. Mynd: Bára Huld Beck

Vefsíða og félagatal styrktar­sjóðs fjár­mögnuðum af Sósíalista­flokknum, Vorstjörnunnar, voru yfirtekin á föstudag í aðdrag­anda aðal­fundar, að sögn gjaldkera sjóðsins.

Miklar deilur hafa ríkt í flokknum undan­farna mánuði og ný framkvæmda­stjórn tók við í flokknum eftir kosningar á aðalfundi sem hafa verið kallaðar hallar­bylting. Ný framkvæmda­stjórn undir forystu Sæþórs Benjamíns Randalssonar tók við og hefur verið gagnrýnin á að peningar flokksins frá ríki og Reykja­víkurborg renni inn í Vorstjörnuna.

Í samtali við Heimildina vildi Sæþór ekki mikið segja um yfir­tökuna nema að flokkurinn muni fá lögfræðing í málið. „Þess vegna langar mig ekki að segja of mikið eða tjá mig opinber­lega um smáatriði,“ segir hann. „Þetta er eitthvað sem við erum að taka alvarlega.“

Sæþór Benjamín Randals­sonFormaður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins segir að lög­maður verði feng­inn í málið.

Vorstjarnan hefur fengið helming af styrkjum ríkisins til Sósíalista­flokksins, um 11,3 milljónir króna í ár, á móti Alþýðu­félaginu sem rekur Samstöðina og fær annað eins. Auk þess fær Vorstjarnan allt framlag Reykja­víkurborgar til flokksins, um 2 milljónir á ári.

Ný framkvæmdastjórn flokksins stýri Google-reikningnum

Sara Stef. Hildar, gjaldkeri Vorstjörnunnar og fyrr­verandi stjórnar­maður í framkvæmda­stjórn flokksins, tilkynnti um yfirtöku vefsíðunnar í Facebook-hópnum Rauða þræðinum í dag. Í samtali við Heimildina segist hún telja sig vita hverjir hafi tekið vefsíðuna yfir.

„Félagið hefur haldið úti vefsíðu, Vorstjarnan.is, með WordPress hugbúnaði og inni í honum er félaga­skrá,“ segir Sara. „Félagið missti aðganginn að vefnum og pósthólfi félagsins.“

Hún segir að stjórn Vorstjörnunnar hafi nú endur­heimt póst­hólfið, fært hýsingu á því og opnað annan vef til að félagar Vorstjörnunnar geti skráð sig að nýju. „Eftir stendur að stjórn félagsins hefur ekki aðgang að uppruna­legum vef og þar með talið félaga­skrá félagsins af því að þeir sem hafa tekið yfir þann vef svara engum skila­boðum,“ segir Sara.

Aðspurð segist Sara ekki vilja segja hverja hún telur hafa tekið vefinn yfir. „Það er bara svo viðkvæmt mál að ég get ekki talað um það.“

Hún segir hins vegar að yfirtaka vefsins og félaga­talsins hafi atvikast með þeim hætti að Google-reikningur Sósíalista­flokksins hafi hýst netfang Vorstjörnunnar en þar var Sara stjórn­andi. „Ég fékk tilkynningu um það að sosialistaflokkurinn@sosialistaflokkurinn.is hefði breytt aðgangs­orðinu að póst­hólfinu,“ segir hún og bætir því við að ný fram­kvæmastjórn hafi tekið við Google-reikningnum áður en breytingin átti sér stað síðasta föstudag.

Nýjar skráningar í félagið fyrir aðalfund

Deilur hafa staðið um Vorstjörnuna og stöðu hennar gagnvart Sósíalista­flokknum um nokkra hríð. Védís Guðmunds­dóttir er skráður formaður Vorstjörnunnar en annar stjórnar­maður, Viggó Jóhannsson, féll frá á síðasta ári. Sara tók við sem gjaldkeri, er prókúru­hafi einnig og hefur þegið greiðslu sem starfs­maður félagsins sem hún segir að nemi um 20% af lágmarks­launum. Félagið sér um rekstur Vorstjörnu alþýðu­húss, félags­heimili flokksins að Bolholti 6.

Sara segir að Sæþór Benjamín hafi áður fengið sömu greiðslu fyrir þessi störf og Karl Héðinn Kristjánsson stjórnar­maður þar áður. Báðir eru þeir í þeim armi sem nú stýrir flokknum, en Sara var í fyrri stjórn. „Þetta staða snýst bara um að kaupa kaffi og G-mjólk og sinna bókunum á húsinu,“ segir hún. „Það hefur verið mest að gera hjá gjaldkera eftir þessar breytingar," segir Sara og bætir því við að hún hafi tekið formlega við sem slíkur 1. júní 2022 samkvæmt fundar­gerð.

Hún segir persónuleg mál í stjórninni hafa tafið fyrir að halda aðalfund, meðal annars andlát Viggós. „Það er verið að klára ársreikning og átti að kjósa nýja stjórn,“ segir hún, en á Rauða þræðinum birti hún nýtt skráningar­form fyrir félaga í Vorstjörnunni. „Nú höldum við því áfram og það rignir inn nýskráningum.“

Sagði Vorstjörnuna lepp framkvæmdastjórnarinnar

Sigrún E. Unnsteins­dóttir, stjórnar­maður í Vorstjörnunni, sagði Heimildinni hins vegar í apríl að hún væri enn skráð í stjórn félagins, en því væri í raun stjórnað af framkvæmda­stjórn Sósíalista­flokksins. „Þetta er sjó­ræn­ingja­stjórn,“ sagði Sigrún.

„Það var aldrei ætlunin að vera einhver leppur. Þetta félag er bara í vasanum á framkvæmda­stjórn Sósíalista­flokks Íslands,“ bætti hún við og átti þá við fráfar­andi framkvæmda­stjórn sem var undir forystu Gunnars Smára, þá formanns.

Athugasemd: Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar stóð að framlag Reykja­víkurborgar til Sósíalista­flokksins sé rúmar 4,5 milljónir í ár. Það rétta er að framlagið er um 2 milljónir króna í ár.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár