Fólki sparkað úr landi fyrir að verja stjórnarskrána

Banda­ríkja­stjórn bann­aði Harvard-háskóla að taka við erlendum nem­endum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag með nýrri til­skipun en Harvard hefur kært ákvörð­un­ina og segir hana skýrt brot gegn fyrsta við­auka stjórn­ar­skrár­innar um tján­ing­ar­frelsi. Bráða­birgða­lög­bann hefur verið sett á til­skip­un­ina. „Hægt og rólega erum við að sjá fall Banda­ríkj­anna," segir Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir, sem er að útskrif­ast úr háskól­anum.

Fólki sparkað úr landi fyrir að verja stjórnarskrána
Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir er að útskrif­ast úr námi við Harvard en til­skip­unin hefur einnig áhrif á nem­endur sem eru að útskrif­ast. Mynd: Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir

Um það bil 27 pró­sent nem­enda við Harvard-háskól­ann eru alþjóð­legir nem­endur og stundar þar nám nokkur fjöldi Íslend­inga sem lifir við mikla óvissu þessa dag­ana. Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir er að útskrif­ast úr námi við skól­ann en til­skip­unin hefur einnig áhrif á nem­endur sem eru að útskrif­ast. 

„Hægt og rólega erum við að sjá fall Banda­ríkj­anna, þannig hvort sem þetta fer í gegn eða ekki þá vill rík­i­s­tjórnin ekki fá gott fólk inn í landið. Þannig það er pínu svona: Á maður að halda áfram að vinna hérna eða ekki?”

Harvard með burði til þess að verjast stjórnvöldum

Að sögn Gunn­hildar eru margir nem­endur í upp­námi en almennt treystir fólk skól­anum vel þar sem hann sé öfl­ugur þegar kemur að bæði fjár­magni og teng­ingum. Einnig hafi nem­endur tekið málin í sínar eigin hendur en Gunn­hildur segir að margir þeirra séu vel tengdir og séu líka að heyra í lög­fræð­ingum sínum. 

Mestu áhrifin eru á nem­endur í fram­halds­námi þar sem erf­ið­ara er fyrir þá að skipta um nám en sam­kvæmt Gunn­hildi eru yfir­völd skól­ans vinna hörðum höndum að því að bregð­ast við til­skip­un­inni.

Víðtæk áhrif á atvinnulífið

Til­skip­unin mun hafa víð­tæk­ari áhrif en á nem­endur skól­ans þar sem margir þeirra nýti tæki­færi sem koma í kjöl­far náms­ins til þess að vinna í Banda­ríkj­unum. „Maður er líka að sjá stærri mynd­ina, sem er að Repúblikanar hafa sagt að þeir vilji enda vinnu­leyfis­prógram­mið, OPT prógram­mið, sem leyfir fólki sem hefur klárað fjög­urra ára háskóla­námið að fá vinnu­leyfi og ég ætl­aði að nota það. Þannig ef skól­inn missir það leyfi þá get ég ekki fengið vinnu­leyfi,” segir Gunn­hildur. 

„Þannig þetta á ekki bara við um núver­andi nem­endur heldur alla sem hafa útskrif­ast úr Harvard og eru að nota það vinnu­leyfi,” en yfir­leitt er hægt að nýta það í þrjú ár. Gunn­hildur bætir við að fólk nýti sér oft þetta leyfi til þess að sækja í kjöl­farið um var­an­legt vinnu­leyfi. „Þetta hefur líka mikil áhrif á mikið af topp banka­fólk í Banda­ríkj­unum og fólki sem er að vinna í hátt­virtum stöðum sem hefur kannski útskrif­ast úr Harvard og er á svona visa.” 

Samkvæmt við­tali við Stuart Anderson og Fanta Aw í Washington Post taka alþjóð­legir nem­endur mik­il­vægan þátt í rann­sóknum og nýsköpun í Banda­ríkj­unum. TIl dæmis er að minnsta kosti einn alþjóð­legur nem­andi í hópi stofn­enda í fjórða hverja sprota­fyr­ir­tæki sem metið er á um eða yfir millj­arða doll­ara og skóla­árið 2023-2024 skil­uðu alþjóð­legir nem­endur um 44 millj­örðum banda­ríkja­doll­ara til banda­ríska hag­kerf­is­ins. 

Gunn­hildur segir að þessar aðgerðir stjórn­valda sýni að þau telji mik­il­væg­ara að Banda­ríkja­menn séu í störfum innan lands­ins. Hún telur að orð­ræða Repúblik­ana sé „öfga­kennd þjóð­ern­is­hyggja á kostnað þeirrar þjóð­ar­hags,” og bætir því við að Repúblikanar búi greini­lega yfir það miklu útlend­inga­hatri að þeir séu til­búnir að taka á sig „mikið tap á vel­ferð.” 

Fólki „sparkað úr landi” fyrir að verja stjórnarskrána

Gunn­hildur segir að þessar til­skip­anir séu „bein árás á tján­ing­ar­frelsi.” Hún er þó bjart­sýn á að Harvard muni ná að halda í sitt leyfi til þess að vera með alþjóð­lega nem­endur, en henni þykir staðan miður fyrir aðra skóla sem hafa ekki sama aðgengi að fjár­magni og lög­fræði­að­stoð. „Við höfum séð eins og að Columbia háskóli hefur verið að gefa eftir. Þau eru að leyfa Trump að mæta með ICE og að taka nem­endur sem hafa opin­skátt gagn­rýnt Ísrael,” segir Gunn­hildur, en ICE sem eru inn­flytj­enda­yf­ir­völd Banda­ríkj­anna, hafa sætt harðri gagn­rýni und­an­farið. Meðal ann­ars fyrir það að hand­taka erlenda nem­endur og setja í gæslu­varð­hald vegna yfir­lýsts stuðn­ings þeirra við Palest­ínu sem yfir­völd líta á sem mein­tan gyð­inga­hatur. 

Hún segir að þótt hún sé bjart­sýn á að Harvard vinni þessa mál­sókn þá vilji Trump ráða eins og kóngur. „Það getur verið að eftir eitt ár að allt sem for­set­inn skrifar undir það fer yfir lög. Það er örugg­lega það sem ég er mest við – það er örugg­lega sanna ógnin ef Trump fær vald yfir þing­inu.”

28. maí, 2025: Fyrsti við­auki (e. amend­ment) banda­rísku stjórn­ar­skrár­innar snýr að tján­ing­ar­frelsi. Fréttin hefur verið leið­rétt í sam­ræmi við það. Fyr­ir­sögn hefur einnig verið upp­færð.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GLL
    Guðmundur Logi Lárusson skrifaði
    Efnið ágætt, en málnotkun ekki boðleg.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár