80 ár og svo mörg mannslíf

Nú er þess minnst að átta ára­tugir eru liðnir frá því að Evr­ópu­styrj­öld­inni miklu, 1939 til 1945, lauk. Hér verður farið yfir hvað gekk á og hvað þessi bar­átta kost­aði. Raktar eru flestallar stærstu her­ferð­irnar þótt fljótt sé farið yfir sögu. Ekki er við því að búast að allar tölur séu hár­ná­kvæmar en þær eru þó eflaust svo réttar sem verða má.

80 ár og svo mörg mannslíf
Millj­ónir barna voru drepin í síð­ari heims­styrj­öld eða dóu vegna hung­urs, pesta og van­rækslu. Þessi börn í Auschwitz voru meðal þeirra heppnu sem lifðu af.

Aðdragandinn

Þegar Nas­ista­flokkur Adolfs Hitlers komst til valda í Þýska­landi 1933 tók strax að horfa ófrið­væn­lega í Evrópu. Hitler fór ekki í felur með þá fyr­ir­ætlun sína að hefna ófara Þýska­lands í fyrri heims­styrj­öld­inni og end­ur­heimta það land sem Þjóð­verjar höfðu þá misst, ekki síst til Póllands. Og ekki nóg með það því Hitler fór heldur ekki í felur með að hann ætl­aði sér að vinna mikil land­svæði í austri og þá af Sov­ét­ríkj­unum þar sem harðsvíruð komm­ún­ista­stjórn undir for­ystu Jósefs Stalíns var við völd. Hitler gerði banda­lag við fas­ista­stjórn Benito Mus­sol­inis á Ítalíu og hóf að stríð­svæð­ast. Fjendur Þjóð­verja frá í stríð­inu 1914-1918, Bretar og Frakkar, vildu flest til vinna að halda frið­inn og létu undan öllum kröfum Hitlers þar til fyr­ir­ætl­anir hans um árás á Pólland var orðnar öllum ljósar 1939. Tví­veldin hétu að verja Pólland en Hitler kom þá með krók á móti bragði og gerði samn­ing við Stalín, sem þá áður virst erkió­vinur hans, og með því var ljóst að Bretar og Frakkar gætu vart komið Pól­verjum til bjargar.


1939

1. september

Innrás Þjóð­verja í Pólland. Tveim dögum síðar lýstu Bretar og Frakkar yfir stríði en aðhöfð­ust lítið gegn Þjóð­verjum nema á sjó. Pól­verjar máttu sín lít­ils gegn yfir­burðum Þjóð­verja í lofti. Þann 17. sept­em­ber réð­ust Sov­ét­menn inn í Pólland úr austri, sam­kvæmt leyni­sam­komu­lagi Hitlers og Stalíns. Þjóð­verjar náðu Varsjá 27. sept­em­ber og 6. októ­ber gáfust leifar pólska hers­ins upp en fjöldi her­manna flúði land. Þjóð­verjar tóku strax til við að þjarma mjög illi­lega að Pól­verjum á yfir­ráða­svæði sínu og sama gerðu Sov­ét­menn í sínum hluta.

Rúmlega 200.000 Pól­verjar voru drepnir, þar af 66.000 her­menn en hinir voru óbreyttir borg­arar. Þjóð­verjar misstu 16.000 manns og Sov­ét­menn 3.000. Þjóð­verjar hófust strax handa um að drepa Gyðinga og myrtu 3.000 þeirra meðan á her­ferð­inni stóð.


30. nóvember

Meðan svo­kallað „þykjustu­stríð“ ríkti millum Þjóð­verja og banda­manna not­uðu Sov­ét­menn tæki­færið og réð­ust á Finnland 30. nóv­em­ber til að treysta stöðu sína á Vest­ur­landa­mær­unum. Finnar vörð­ust af ótrú­legri hörku en urðu að lokum að lúta í lægra haldi fyrir ofurefli liðs. Í mars 1940 urðu þeir að afsala sér 11 pró­sentum af landi sínu.

26.000 Finnar týndu lífi en nærri 130.000 Sov­éther­menn.


1940

9. apríl

Þjóð­verjar réð­ust inn í Noreg til að treysta stöðu sína og tryggja járn­flutn­inga frá Svíþjóð. Lögðu í leið­inni undir sig Danmörku sem gafst upp sam­dæg­urs. Norðmenn og Banda­menn vörð­ust af kappi en Banda­menn hurfu á brott þegar inn­rás Þjóð­verja í vest­ur­átt hófst og gafst norski her­afl­inn þá upp en stór hluti hans hélt áfram bar­átt­unni frá Bret­landi.

Alls féllu rúm­lega 1.300 Norðmenn, þar af 5–600 óbreyttir borg­arar. Þjóð­verjar misstu tæp­lega 6.000 her­menn, Bretar tæp­lega 2.000 og Frakkar og Pól­verjar um 500.


Katyn-skógur

Í mars og apríl lét Stalín drepa fjölda Pólverja, aðal­lega liðs­for­ingja úr hernum, til að bæla niður hugs­an­lega and­spyrnu við stjórn Sov­ét­manna á hans yfir­ráða­svæði í Póllandi.

Fullvíst er talið að nærri 22.000 Pól­verjar hafi verið myrtir í Katyn-skógi og á fleiri stöðum.


10. maí

Nú réð­ust Þjóð­verjar inn í Holland, Belgíu, Lúx­em­borg og Frakk­land. Eftir ótrú­lega sig­ur­göngu þýska hers­ins höfðu öll löndin gef­ist upp 25. júní, Frakkar síð­astir.

Frakkar misstu 90.000 manns, Þjóð­verjar 27.000, Bretar 3.500, Belgar 6.000,Hol­lend­ingar 2.500 og Ítalir, sem réð­ust inn í Frakk­land að sunnan, 1.200.


Eystrasaltsríkin kramin

Sov­ét­ríkin lögðu undir sig Eistland, Lettland og Litáen án þess að skoti væri hleypt af enda höfðu ríkin séð hvernig fór fyrir Finn­landi. Þau voru síðan inn­limuð í Sov­ét­ríkin að „ósk“ þeirra sjálfra.


Orrustan um Bretland

Um haustið og fram á vetur stóðu yfir loft­árásir og loft­bar­dagar er Þjóð­verjar reyndu að kné­setja breska flug­her­inn til að und­ir­búa inn­rás á Bretland.

Það mistókst en kost­aði líf 14.000 óbreyttra borg­ara á Bret­landi, 1.500 breskra flug­liða og 2.500 þýskra.


Október

Ítalir réð­ust inn í Grikk­land frá Albaníu sem þeir höfðu lagt undir sig 1939. Ítalir fóru hrak­farir og hrökkl­uð­ust brátt til baka. Einnig réð­ust Ítalir frá Líbíu inn í Egifta­land sem Bretar héldu. Þeir fóru einnig hrak­farir þar, sjá hér aftar.

Ítalir og Grikkir misstu hvorir um sig 13.000 manns.


Orrustan um Atlantshafið

Árið 1940 stóð orr­ustan um Atl­ants­hafið sem hæst. Banda­menn stöv­uðu sigl­ingar til Þýska­lands en þýskir kaf­bátar og her­menn reyndu að stöðva birgða­flutn­inga til Bret­lands. Til að bæta víg­stöðu sína tóku Bretar Ísland 10. maí. Þrátt fyrir að Þjóð­verjar gengju hart fram höfðu þeir í raun tapað orr­ust­unni þegar kom fram á 1943.

36.000 sjó­menn banda­manna og 30.000 sjóliðar á her­skipum þeirra féllu á haf­inu 1939–1945. 73 pró­sent mann­afla þýska kaf­báta­flot­ans féll, eða um 30.000. Í engum her­sveitum var mann­fallið hlut­falls­lega hærra meira nema í japönsku kamikaze-sveit­unum. 5.000 aðrir þýskir sjóliðar féllu og. 


1941

Febrúar

Eftir að Ítalir hrökt­ust undan Bretum frá Egifta­landi sendi Hitler her til Norður-Afríku til að snúa þar við blað­inu. Miklar svipt­ingar urðu á svæð­inu næstu miss­erin en Bretar höfðu að lokum sigur og í nóv­em­ber 1942 komu Banda­ríkja­menn til skjal­anna. Þjóð­verjar og Ítalir gáfust loks upp í Túnis í maí 1943.

Alls er talið að í þessum átökum hafi fallið 24.000 Ítalir, 25.000 Þjóð­verjar og um 32.000 Bretar og banda­menn þeirra.


6. apríl

Þjóð­verjar gerðu inn­rás í Júgóslavíu og Grikk­land, enn til að bjarga Ítölum úr klípu og treysta stöðu sína við Mið­jarð­ar­haf. Eins og oftar í upp­hafi stríðs­ins gerðu yfir­burðir Þjóð­verja í lofti úts­lagið og þeir náðu báðum löndum til­tölu­lega auð­veld­lega.

Af Júgóslövum féllu 3.500 her­menn, af Grikkjum nærri 14.000 en Þjóð­verjar misstu 1.200 manns.


22. júní

Bar­barossa. Innrás Þjóð­verja og banda­lags­þjóða þeirra (Ítala, Rúmena, Ungverja, Finna, Slóvaka og Króata) inn í Sov­ét­ríkin. Nærri 4 millj­ónir her­manna og 600.000 hross tóku þátt í árásinni. Sov­ét­menn fóru mjög hall­oka í byrjun og misstu mikið land, þar á meðal mest­alla Úkraínu. Þjóð­verjar sett­ust um Lenín­grad en í des­em­ber náði Rauði her­inn að spyrna við fæti við Moskvu.

Allt að 1 milljón sov­éskra her­manna féll í bar­dögum fram til ára­móta 1941–42 og önnur milljón óbreyttra borg­ara, enda gengu Þjóð­verjar fram af mik­illi grimmd á her­teknum svæðum. 3 millj­ónir sov­éskra her­manna féllu í hendur Þjóð­verja og af þeim dóu að minnsta kosti 2 millj­ónir af hungri, vos­búð, vinnu­þrælkun eða voru hrein­lega myrtir.

Af inn­rás­ar­lið­inu féllu til ára­móta 174.000 Þjóð­verjar, 60.000 Rúmenar, 4.000 Ung­verjar og 24.000 Finnar, alls um 262.000 manns.


7. desember

Japanir, banda­menn Þjóð­verja og Ítala, gera árás á flota­höfn Banda­ríkj­anna og heims­styrj­öldin berst til Kyrra­hafs. Banda­ríkja­menn slást í lið með Bretum gegn Þjóð­verjum.

Sjá aft­ast.


1942

20. janúar

Á ráð­stefnu í Wannsee nálægt Berlín skipu­lögðu Þjóð­verjar fjöldamorð sín fyrir næstu miss­eri.

Fram að ráð­stefn­unni hafði rúm­lega 1 milljón Gyðinga verið drepin á aust­ur­víg­stöðv­unum af Þjóð­verjum og fólki af öðru þjóð­erni. Eftir ráð­stefn­una voru nálægt 5 millj­ónir myrtar til við­bótar á stöðum eins og Auschwitz, Treblika, Majdanek, Sobibor, o.fl.

Auk þess drápu Þjóð­verjar í morð­verk­smiðjum sínum fjölda stríðs­fanga, ekki síst Pólverja og Sov­ét­menn, 300.000 af Róma­fólki, um 7.000 sam­kyn­hneigða karla og tæp­lega 300.000 fatl­aða.


Austurvígstöðvarnar 1942

Fyrri hluta árs­ins gekk á ýmsu en um mitt ár hófu Þjóð­verjar mikla sókn sem end­aði í hrann­vígum við Stalín­grad. Barist var af ótrú­legum ofsa af beggja hálfu og manns­líf aldrei spöruð. Þar var þýska hern­að­ar­vélin loks brotin á bak aftur, end­an­lega eins og síðar kom í ljós.

Á öllu þessu ári féll rúm 1 milljón sov­éskra her­manna, enda fólu bar­daga­að­ferðir Rauða hers­ins í sér að vera ekki spar á mann­afla. Af Þjóð­verjum féllu 250.000 her­menn og 150.000 af banda­mönnum þeirra.

Um það bil 1 milljón sov­éskra borg­ara féll í val­inn, 150.000 Pól­verjar og margir fleiri.


1943

Júlí 1943

Banda­menn gera inn­rás á Sikiley og síð­sum­ars á meg­in­land Ítalíu. Ítalir losa sig við fas­ista­stjórn Mus­sol­inis og gef­ast upp en Þjóð­verjar taka völdin í sínum hluta lands­ins og verj­ast af hörku á Norður-Ítalíu allt til stríðsloka.

Samtals féllu á Sikiley og Ítalíu 1943–1945 allt að 30.000 Banda­ríkja­menn, 20.000 Bretar, 6.000 Kanada­menn, 6.000 Frakkar og nokkur fjöldi Pólverja og ann­arra banda­manna, alls um 62.000 her­menn. Um 55.000 þýskir her­menn voru drepnir og um 20.000 Ítalir á sama bili. 100.000 óbreyttir borg­arar féllu, fórn­ar­lömb fjöldamorða Þjóð­verja, loft­árása Banda­manna og hung­ursneyðar.


Austurvígstöðvarnar 1943

Þrek Þjóð­verja var í raun þorrið og síð­asta alvar­lega sókn­ar­til­raun þeirra við Kúrsk um sum­arið fór fljótt út um þúfur. Um leið hófst gagn­sókn Sov­ét­manna í vest­ur­átt.

Þrátt fyrir betra gengi Rauða hers­ins var mann­fall enn ægi­legt og jókst reyndar enn. Um 1,3 millj­ónir her­manna féllu. Manntjón Þjóð­verja jókst og mikið því 520.000 þýskir her­menn dóu og 200.000 banda­menn Þjóð­verja.

Óbreyttir borg­arar í Sov­ét­ríkj­unum féllu enn í hrönnum, nærri milljón manns og 100.000 Pól­verjar.


1944

27. janúar

Nærri 900 daga umsátur Þjóð­verja um Lenín­grad er loks rofið. Það var eitt lengsta og hroða­leg­asta umsátur sem sögur fara af.

Mann­fallið í borg­inni var verst vet­ur­inn 1941–42 en alls dó tæp­lega milljón íbúa borg­ar­innar, um 40 pró­sent. Rúmlega 620.000 sov­éskir her­menn dóu við að verja borg­ina en hátt í 200.000 þýskir féllu við umsátrið.


6. júní – Normandy

Langþráð inn­rás banda­manna í Frakk­land hófst í júní þegar um 150.000 her­menn voru settir á land. Þrátt fyrir harða and­spyrnu Þjóð­verja náðu banda­menn fót­festu og 25. ágúst var París frelsuð. Banda­menn gerðu sér vonir um að ráð­ast beint inn í Þýska­land um haustið en urðu að doka við og safna kröftum eftir bakslag við Rín­ar­fljót. Það var þó ljóst að yfir­burðir þeirra í mann­afla og her­bún­aði var slíkur að þegar her­inn færi af stað yrði fátt um varnir.

Af banda­mönnum féllu 68.000 Banda­ríkja­menn, 17.000 Bretar, 5.000 Kanada­menn, 4.000 Frakkar og all­margt af breskum sam­veld­is­her­mönnum. Alls um 95.000 her­menn. Þýskir her­menn sem féllu eru taldir hafa verið 250.000.

Um 70.000 óbreyttir borg­arar féllu, aðal­lega eftir loft­árásir, flest í Frakk­landi eða 40.000.


Austurvígstöðvarnar 1944

Blóðsút­hell­ing­arnar juk­ust enn, enda barist af gíf­ur­legri grimmd af beggja hálfu. Sov­ét­menn ráku flótta Þjóð­verja út úr Sov­ét­ríkj­unum en misstu enn ógrynni liðs. Undir árs­lok voru þeir komnir inn í Pólland og að landa­mærum Þýska­lands. Þjóð­verjar hafa þá yfir­gefið Grikk­land og Balkanskaga til að ein­beita sér að vörn heima­lands­ins.

Sov­ét­menn misstu 1,4 millj­ónir her­manna og voru ekki fleiri á nokkru öðru stríðs­ári. Hver ein­asti af þessum her­mönnum var heill heimur út af fyrir sig. Sama má segja um þá 800.000 Þjóð­verja sem féllu og 300.000 banda­menn þeirra.

700.000 óbreyttir borg­arar Sov­ét­ríkj­anna týndu lífi þetta árið, 70.000 Pól­verjar.


1945

Vesturvígstöðvarnar 1945

Sókn banda­manna inn í Þýska­land hófst í jan­úar og hélt áfram, hægt en örugg­lega allt til stríðsloka.

Talið er að um 51.000 her­menn banda­manna hafi verið drepin í loka­sókn­inni, þar af 37.000 Banda­ríkja­menn og 10.000 Bretar. Þjóð­verjar féllu um 250.000 við vörn­ina.

Um 25.000 óbreyttir borg­arar í Þýska­landi létu lífið ef loft­árásir eru ekki taldar með, rúm­lega 5.000 í Hollandi og Belgíu og um 2.000 í Frakk­landi.


Dresden

Sprengju­flug­vélar Breta og Banda­ríkja­manna gerðu miklar loft­árásir á Dresden í febr­úar og voru þær hluti af umfangs­miklum árásum á þýskar borgir, bæði hern­að­ar­skot­mörk og íbúa­byggðir, allt frá 1941 og til stríðsloka. Íkveikju­árásir eins og á Hamborg í júlí 1943 urðu sér­lega umdeildar eftir stríðið. Margar borgir voru nán­ast lagðar í rúst enda urðu yfir­burðir banda­manna í loft algjörir er leið á stríðið. Manntjón var þó ekki eins mikið og stundum er sagt, og árás­irnar höfðu nær engin áhrif á bar­áttu­þrek Þjóð­verja.

Talið er að alls hafi 430.000 þýskir borg­arar farist í loft­árás­unum. Í Dresden féllu senni­lega rúm 25.000 manns, en ekki rúm­lega 100.000 eins og fólk trúði lengi.

Kostn­aður í mann­afla við þessar loft­árása­her­ferð var mjög hár, því 38.000 breskir flug­liðar, 28.000 Banda­ríkja­menn og 10.000 Kanada­menn og aðrir sam­veld­is­menn féllu öll stríðs­árin. Alls um 76.000, um einn þriðji allra þeirra sem tóku þátt í árás­unum.

Um 32.000 þýskir flug­liðar féllu við að reyna að verj­ast árás­unum.


Austurvígstöðvar 1945

Sókn Sov­ét­manna úr austri náði til Berlínar seinni part apríl 1945. Þrátt fyrir að stríðið væri löngu tapað vörð­ust Þjóð­verjar enn af von­lausri örvænt­ingu enda bannað að gef­ast upp af Hitler. 

Á fyrstu fjórum mán­uðum stríðs­ins féllu rúm­lega 1,2 millj­ónir þýskra her­manna á aust­ur­víg­stöðv­unum og 250.000 her­menn banda­manna þeirra, ekki síst Ung­verjar. Í fyrsta sinn var mann­fall Þjóð­verja meira en Sov­ét­manna, þó féllu 800.000 sov­éskir her­menn, eða sem svarar tveimur íslenskum þjóðum.

Enn dóu 300.000 óbreyttir borg­arar í Sov­ét­ríkj­unum, aðal­lega af hungri og skorti, og 30.000 pólskir borg­arar.

Frá hausti 1944 og til stríðsloka féllu 700.000 óbreyttir borg­arar í Þýska­landi þar sem sókn Rauða hers­ins stóð. Þau sem féllu í loft­árásum banda­manna úr vestri eru ekki talin þar með.

2,5 millj­ónir þýskra her­manna féllu í hendur Sov­ét­manna öll stríðs­árin og lifði aðeins um helm­ingur þeirra stríðið af. Það var þó tölu­vert betra hlut­fall en meðal þeirra sov­ésku stríðs­fanga sem Þjóð­verjar tóku. Af 5,7 millj­ónum stríðs­fanga í heild lifðu af aðeins um 25 pró­sent.


Kyrrahafsstríðinu lýkur

Eftir kjarn­orku­árás Banda­ríkj­anna á Japan í byrjun ágúst lýkur heims­styrj­öld­inni. Í Kyrra­hafs­stríð­inu féllu 8,5 millj­ónir Kínverja (þar af 6 millj­ónir óbreyttra borg­ara), 2 millj­ónir jap­anskra her­manna og 600.000 óbreyttra borg­ara, 116.000 banda­rískra her­manna og 87.000 Breta. Tæp 600.000 Fil­ippsey­inga (aðal­lega óbreyttir borg­arar) féllu og 2 millj­ónir í Indónesíu og 1 milljón í Indókína, 250.000 í Búrma, 100.000 í Kóreu og um 200.000 í öðrum löndum.

Alls um 16 millj­ónir manna.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár