Björgunaraðilar leita í rústum að fólki á lífi - Yfir 1600 látin eftir jarðskjálftann

Að minnsta kosti 1.644 manns lét­ust og yfir 3.400 slös­uð­ust í Mjanmar sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá her­for­ingja­stjórn­inni. Vegna mik­illa trufl­ana á fjar­skiptum er umfang hörm­ung­anna þó aðeins að byrja að koma í ljós og talið er að fjöldi lát­inna eigi enn eftir að hækka veru­lega.

Björgunaraðilar leita í rústum að fólki á lífi - Yfir 1600 látin eftir jarðskjálftann
Björg­un­arteymi vinna að því að bjarga íbúum sem eru fastir undir rústum Sky Villa fjöl­býl­is­hús­anna í Mandalay. Mynd: AFP

Fjöldi lát­inna eftir gríð­ar­legan jarð­skjálfta sem skók Mjanmar og Taíland hefur farið yfir 1.600 en björg­un­ar­að­ilar grafa nú í rústum hrund­inna bygg­inga í örvænt­ing­ar­fullri leit að fólki á lífi. Skjálfti sem var 7,7 að stærð, reið yfir norð­vestan við borg­ina Sagaing í mið­hluta Mjanmar síð­degis á föstu­dag. Stuttu síðar fylgdi eft­ir­skjálfti sem mæld­ist 6,7.

Miklar skemmdir í Mandalay – tugir þúsunda í hættu

Skjálft­inn eyði­lagði bygg­ingar, feldi brýr og skemmdi vegi víða um Mjanmar. Mestu skemmd­irnar urðu í Mandalay, næst­stærstu borg lands­ins, þar sem rúm­lega 1,7 millj­ónir manna búa.

Að minnsta kosti 1.644 manns lét­ust og yfir 3.400 slös­uð­ust í Mjanmar, auk þess sem að minnsta kosti 139 er saknað, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá her­for­ingja­stjórn­inni. Um tíu dauðs­föll hafa einnig verið stað­fest í Bangkok.

Vegna mik­illa trufl­ana á fjar­skiptum er umfang hörm­ung­anna þó aðeins að byrja að koma í ljós, og talið er að fjöldi lát­inna eigi enn eftir að hækka veru­lega.

Fólk fast í rústum fjölbýlishúsa

Í Mandalay sáu frétta­menn AFP björg­un­ar­menn draga konu lif­andi úr rústum fjöl­býl­is­húss. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða kross­inum gætu yfir 90 manns verið inni­lokuð þar.

Eftir margra klukku­stunda nákvæma vinnu við Sky Villa fjöl­býl­is­húsið, þar sem helm­ingur af tólf hæðum hrundi í skjálft­anum, var Phyu Lay Khaing, 30 ára, borin á börum og faðm­aði eig­in­mann sinn áður en hún var flutt á sjúkra­hús.

Önnur kona í hús­inu var ekki jafn heppin en sonar hennar sem starf­aði í hús­inu, tví­tugur að aldri, er enn saknað.

„Við finnum hann ekki enn. Ég á bara þetta barn – hjartað mitt er að bresta,“ sagði Min Min Khine, 56 ára mat­reiðslu­kona í hús­inu. „Hann borð­aði í mat­salnum mínum og sagð­ist þurfa að fara. Svo kom skjálft­inn. Ef hann hefði verið með mér, hefði hann kannski kom­ist undan eins og ég,“ sagði hún við AFP.

Fólk sefur á götum – ótti við frekari skemmdir

Annars staðar í Mandalay sáu frétta­menn tugi fólks und­ir­búa sig undir að sofa úti á götu, frekar en að taka áhætt­una í skemmdum bygg­ingum. Þetta var stærsti skjálfti sem skollið hefur á Mjanmar í ára­tugi, að sögn jarð­fræð­inga, og hrist­ing­ur­inn var svo öfl­ugur að bygg­ingar í Bangkok, hund­ruðum kíló­metra frá upp­tökum, skemmd­ust illa.

Blaða­menn AFP sáu gam­alt búdda­klaustur í Mandalay sem hafði hrunið til grunna. „Klaustrið hrundi líka. Einn munkur lést, fleiri slös­uð­ust. Við drógum fólk út og fluttum á sjúkra­hús,“ sagði her­maður við eft­ir­lits­stöð nálægt.

Tilkynnt hefur verið um skemmdir á flug­vell­inum í Mandalay, sem gæti tor­veldað hjálp­ar­starf í landi þar sem björg­unar- og heil­brigð­is­kerfi hafa þegar orðið illa úti eftir fjög­urra ára borg­ara­stríð sem hófst með valdaráni hers­ins árið 2021.

Lýst var yfir neyð­ar­á­standi á þeim sex stöðum sem urðu verst úti eftir skjálft­ann. Á einu stærsta sjúkra­húsi höf­uð­borg­ar­innar Naypyidaw neydd­ust heil­brigð­is­starfs­menn til að með­höndla slas­aða utandyra.

Hjálp­ar­stofn­anir hafa varað við því að Mjanmar sé illa und­ir­búið fyrir ham­farir af þess­ari stærð­argráðu. Um 3,5 millj­ónir voru á ver­gangi vegna borg­ara­styrj­ald­ar­innar áður en skjálft­inn reið yfir og margir búa við mat­ar­skort.

Byggingarhrun í Bangkok – tugir enn ófundnir

Skjálft­inn náði einnig til Taílands en Chadchart Sittipunt, borg­ar­stjóri Bangkok, sagði stað­fest að átta hefðu væri látnir eftir hrun þrjá­tíu hæða ókláraðrar bygg­ingar, og að minnst átta hefði verið bjargað. Enn eru 79 eru ófundin í bygg­ing­unni, sem er nærri Chatuchak-helg­ar­mark­að­inum, vin­sælum áfanga­stað ferða­manna.

„Ég get ekki lýst hvernig mér líður – þetta gerð­ist á auga­bragði,“ sagði bygg­ing­ar­verka­mann­inn Khin Aung, sem slapp lif­andi. „Allir vinir mínir og bróðir minn voru inni í bygg­ing­unni þegar hún hrundi. Ég á engin orð.“

Leit­ar­hundar og hita­skynj­un­ar­drónar voru not­aðir við leit­ina en  Chadchart sagði að unnt væri að stað­setja um 30 manns með rat­sjá.

Yfirvöld í Bangkok hyggj­ast senda yfir 100 verk­fræð­inga til að skoða bygg­ingar eftir að hafa fengið yfir 2.000 til­kynn­ingar um skemmdir.

Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun

Rauði kross­inn á Íslandi hefur hafið neyð­ar­söfnun fyrir þolendur jarð­skjálft­anna í Mjanmar. Við þessar erf­iðu aðstæður eru við­bragðs­að­ilar, meðal ann­ars sjálf­boða­liða­sveitir Rauða kross­ins, að störfum. Rauði kross­inn í Mjanmar er á ham­fara­svæð­unum og sveitir frá nágranna­löndum eru einnig komnar til lands­ins. Fleiri hafa verið kall­aðar út.

„Við Íslend­ingar þekkjum af eigin raun þá ofsa­fengnu krafta sem leys­ast úr læð­ingi í stórum jarð­skjálftum,“ er haft eftir Gísla Rafni Ólafs­syni, fram­kvæmda­stjóra Rauða kross­ins á Íslandi, í til­kynn­ingu vegna söfn­un­ar­innar. „Skjálft­inn sem varð í Mjanmar í gær­morgun var af slíkri stærð­argráðu að hann lagði stórt svæði í rúst, í landi þar sem inn­viðir voru veikir fyrir. Mannfall er mikið og utan­að­kom­andi aðstoð lífs­nauð­syn­leg.“

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár