Börnin á Gaza: Mynd ársins 2024

Mynd úr seríu Golla frá mót­mælum vegna stríðs­ins og þeirrar skelf­ingar sem verið hefur á Gaza-strönd­inni var valin Mynd árs­ins 2024 á verð­launa­há­tíð Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands. Heim­ildin birtir ser­í­una alla í til­efni verð­laun­anna.

Börnin á Gaza: Mynd ársins 2024
Ung palest­ínsk stúlka hvílir sig á Aust­ur­velli Mynd: Golli

Stríðið og skelf­ing­arnar í Palest­ínu og örlög fólks­ins á Gaza voru ástæða stöðugra mót­mæla í mið­borg Reykja­víkur á árinu. Tjald­búðir á Aust­ur­velli og mót­mæla­göngur niður Laugaveg lit­uðu borg­ina og mann­lífið.

Mynd úr þess­ari mynda­seríu Golla, ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar, var valin Mynd árs­ins 2024, á verð­launa­há­tíð sem fram fór 22. mars síð­ast­lið­inn. Af því til­efni birtir Heim­ildin mynda­ser­í­una í heild. 

Hún er auk þess hluti af ljós­mynda­sýn­ing­unni Myndir árs­ins 2024 í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur. Á sýn­ing­unni er að finna 101 mynd frá 14 blaða­ljós­mynd­urum. Sýningin er opin til 27. apríl.

Ungir drengir ganga niður Laugaveg.
Mikið líf var í stóra tjald­inu sem reist var á Aust­ur­velli þar sem Íslend­ingar og brott­flúnir Palest­ínu­menn komu saman.
Hópur íslend­inga tók mjög virkan þátt í reglu­legum mót­mælum stefnu Íslands í mál­efnum …
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Andrés Arnalds skrifaði
    Frábærar myndir sem endurspeglar vel ömurleika þeira illvirkja sem Ísrael er að fremja með aðstoð Bandaríkjunum. En, afhverju er þetta kallað stríð en ekki innrás?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár