Verðbólgan seytlast niðurávið

Verðbólga hefur ekki mælst lægri síðan í byrjun árs 2021. Hún mælist nú 4,2 prósent.

Verðbólga mælist nú 4,2 prósent á ársgrundvelli, en vísitala neyslu­verðs hækkaði um 0,9 prósent á milli mánaða. Verðbólga hefur ekki mælst lægri síðan í febrúar árið 2021. Ef húsnæðis­liðurinn er undan­skilinn, hefur tólf mánaða hækkun vísi­tölunnar numið um 2,7 prósentum.

Á milli mánaða hafði hækkun verðs á mat- og drykkjar­vörum mestu áhrifin á verð­bólguna til hækkunar, en matur og drykkur hækkaði um 1,1 prósent á milli mánaða. Næst veiga­mestar voru hækkanir á húsgögnum og heimilis­búnaði, en samtals var hækkun í þeim flokki 5,6 prósent á milli mánaða.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár