Ríkisstjórnin fundar um Grænland: „Umbrotatímar í alþjóðapólitík“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir verstu mögu­legu nið­ur­stöð­una fyr­ir Ís­land i Græn­lands­mál­inu að klemm­ast á milli Evr­ópu og Banda­ríkj­anna. Þá yrð­um við ein á báti. Sam­starf Banda­ríkj­anna og Ís­lands sé gríð­ar­lega þýð­ing­ar­mik­ið fyr­ir Ís­lend­inga og því mik­il­vægt að vera ekki með dig­ur­barka­lega yf­ir­lýs­ing­ar um Banda­rík­in.

<span>Ríkisstjórnin fundar um Grænland: </span>„Umbrotatímar í alþjóðapólitík“
Donald Trump Íslendingar hafa treyst á Bandaríkin í öryggis- og varnarmálum, en nú hótar forseti Bandaríkjanna að taka yfir nágrannaríki. Mynd: Brendan Smialowski / AFP

Pabbi biður að heilsa öllum á Grænlandi,“ sagði Donald Trump yngri, elsti sonur Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna, þegar hann var nýlentur á Grænlandi í byrjun janúar. Þangað kom hann með flugvél sem merkt er Trump stórum stöfum. Hann sagði við fjölmiðlafólk sem safnast hafði saman í flugstöðinni að hann væri bara ferðamaður. Ekki stæði til að hann hitti stjórnmálafólk, hann ætlaði bara að skoða sig um. 

Trump yngri kom til Grænlands í Trump flugvélinniElsti sonur Bandaríkjaforseta heimsótti Grænland í byrjun janúar.

Á blaðamannafundi suður í Flórída sama dag sagði Trump, sem rúmum hálfum mánuði síðar sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna, að Bandaríkin þyrftu á Grænlandi að halda til að tryggja efnahagslegt öryggi.

Trump hefur reglulega nefnt að vilja kaupa Grænland. Það gerði hann um miðbik forsetatíðar hans hinnar fyrri árið 2019. Nú er hann orðinn forseti að nýju, valdamesti maður í heimi og hefur að …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Yfirgangstal með óþægilega hliðstæðu
StjórnmálBandaríki Trumps

Yf­ir­gangstal með óþægi­lega hlið­stæðu

Embætt­i­staka Don­alds Trumps vek­ur upp spurn­ing­ar sem við Ís­lend­ing­ar þurf­um að hugsa alla leið, með­al ann­ars í ljósi yf­ir­lýs­inga hans gagn­vart Græn­landi og Kan­ada, seg­ir Frið­jón R. Frið­jóns­son borg­ar­full­trúi. Hann kveðst einnig hafa „óþæg­inda­til­finn­ingu“ gagn­vart því að vellauð­ug­ir tækni­brós­ar hjúfri sig upp að Trump, sem nú fer á ný með fram­kvæmda­vald­ið í lang­vold­ug­asta ríki heims.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár