„Meiðið hann ekki, strákar!“

Það segir sína sögu um Donald Trump að hann skuli nú engan Banda­ríkja­for­seta dá meira en William McKinley. Hér segir af því þegar hann var myrtur í borg­inni Buffalo haustið 1901

„Meiðið hann ekki, strákar!“
McKinley skot­inn í „hofi tón­list­ar­innar“.

Íborg­inni Buffalo í New York-ríki gerð­ist sá atburður í sept­em­ber 1901 að til­ræð­is­maður varð Banda­ríkja­for­seta að bana. Sá atburður er sögu­legur í sjálfu sér en kannski enn athygli­verð­ari nú en áður því athyglin hefur í auknum mæli beinst að þessum for­seta, William McKinley, eftir að Donald Trump festi á honum mikla aðdáun.

Svo kíkjum aftur á McKinley.

Maður tollmúranna

Efna­hags­lífið hafði náð sér vel á strik eftir djúpa kreppu sem hófst 1893 og McKinley var þakk­aður sá bati. For­set­inn hafði reist heil­mikla toll­múra um banda­rískan iðnað og fram­leiðslu og aðdá­endur vernd­ar­tolla hafa æ síðan bent á þetta dæmi sem sönnun á nyt­semi toll­anna.

Það er einmitt tolla­stefna McKinleys sem veldur því að hann er nú orð­inn eft­ir­læt­is­for­seti Trumps því helsta töfra­orð hans til að leysa öll vanda­mál er nú „tollar“.

Hag­fræð­ingar nútil­dags munu ekki vera sann­færðir um að það hafi endi­lega verið toll­múrar McKinleys …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár