Læknamistök og handleggsbrot hafa markað ævi Ingu

Ingu Sæland félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra var ekki hugað líf vegna skæðrar heila­himnu­bólgu þegar hún var smá­barn. Hún lifði en sjón hennar tap­að­ist að miklu leyti. Inga þekkir bæði fátækt og sáran missi, gift­ist sama mann­inum tvisvar með 44 ára milli­bili og komst í úrslit í X-Factor í milli­tíð­inni. Hand­leggs­brot eig­in­manns­ins og ítrekuð lækna­mis­tök á tíunda ára­tugnum steyptu fjöl­skyld­unni í vand­ræði.

Læknamistök og handleggsbrot hafa markað ævi Ingu
Ráðherra Inga Sæland stofn­aði Flokk fólks­ins árið 2016 og hefur náð inn á þing þrennar kosn­ingar í röð. Núna er flokk­ur­inn hennar í rík­is­stjórn í fyrsta sinn. Mynd: Golli

Að Inga Sæland hafi leitt flokk sinn inn í rík­is­stjórn og tekið við ráð­herra­emb­ætti er nokkuð sem fáir hefðu veðjað á er hún skaust fram á stjórn­mála­sviðið. Leið Ingu til póli­tísks frama er óvenju­leg, ekki síst þegar horft er til þess hvernig líf hennar hófst, norður á Ólafs­firði árið 1959, en læknir á staðnum taldi hana við dauð­ans dyr strax á fyrsta ári, vegna veik­inda sem sviptu hana eðli­legri sjón.

„Ég fædd­ist algjör­lega heil­brigð, en ég missi sjón­ina í kjöl­farið á hlaupa­bólu sem ég fékk þegar ég var að verða 5 mán­aða gömul. Þá fékk ég hlaupa­bólu og heila­himnu­bólgu í kjöl­farið á því sem skemmdi þessar stöðvar víst,“ sagði Inga í við­tali við Radíó Stam, fyrir um ára­tug síðan. Í sama við­tali sagði hún frá því að síðar hefði henni verið tjáð af augn­lækni á Akureyri að ef hún hefði fengið sýkla­lyf þegar hún var komin með heila­himnu­bólg­una hefði …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Stórmerkileg kona
    1
  • GS
    Gunnar Snæland skrifaði
    Mætti kannski hefja handritsgerð að þáttaröðinni um lífshlaup Ingu. Ekki ómerkilegri en Vigdís
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár