Sett á lyf sem reyndust hættuleg

Ásta Þór­dís Skjald­dal gekk í 25 ár á milli lækna þar til hún fékk loks rétta sjúk­dóms­grein­ingu. Aft­ur og aft­ur var hún sett á lyf við sjúk­dómi sem hún var ekki með. Í tvígang voru lyf­in sem hún var á tek­in úr sölu því þau voru tal­in hættu­leg heilsu fólks. „Það var eng­inn sem hlustaði,“ seg­ir Ásta.

Sett á lyf sem reyndust hættuleg
Breyting til batnaðar Ásta var um tíma algjörlega óvinnufær og kom sér varla í að vaska upp. Nú er öldin önnur, eftir að í ljós kom hvað raunverulega amaði að henni. Mynd: Golli

Ásta Þórdís Skjalddal fór fyrst að finna fyrir heilsubresti 23 ára gömul. Fram að því hafði hún verið alheilbrigð. Hún var ófrísk og fékk svo mikinn bjúg að hún átti erfitt með að skrifa nafnið sitt. Eftir að drengurinn hennar kom í heiminn fór hún að bæta hratt á sig þyngd, alveg án þess að það ætti sér eðlilegar skýringar. 

Hún leitaði til lækna en það kom ekkert út úr þeim samtölum fyrr en tveimur árum síðar, þegar hún fór í mælingu sem sýndi að ekkert skjaldkirtilshormón var til staðar í líkama hennar. Vanvirkur skjaldkirtill var talinn rótin. Það var ekki fyrr en um 25 árum , þar af átta óvinnufærum, og ótal læknisheimsóknum síðar sem í ljós kom að hún var ekki með neinn skjaldkirtil.

Ásta er viðmælandi í sjötta og síðasta þætti Móðursýkiskastsins, hlaðvarps á vegum Heimildarinnar þar sem …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HSR
    Hrefna S. Reynisdóttir skrifaði
    Mér var sagt af lækni að ástæða verkja í fingrum væri að ég var of þung.
    Þegar ég sagði "ætlar þú í alvöru að segja mér (nafn) að mér sé illt í puttunum því ég er feit?" gaf blessaður maðurinn sig og náðarsamlegast leyfði mér að fara til gigtalæknis þar sem ég var mjög hratt og örugglega greind með liðagigt..
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Móðursýkiskastið

Grátbað um myndatöku fyrir barnið sem leiddi í ljós heilaæxli
ViðtalMóðursýkiskastið

Grát­bað um mynda­töku fyr­ir barn­ið sem leiddi í ljós heila­æxli

Mán­uð­um sam­an þurfti Hrund Ólafs­dótt­ir að grát­biðja lækni um að senda Sigrúnu, dótt­ur henn­ar, í mynda­töku vegna al­var­legra veik­inda sem voru skil­greind sem mígreni. „Barn­ið bara kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist.“ Þeg­ar hún loks fékk ósk sína upp­fyllta kom í ljós fimm sentí­metra stórt æxli í litla heila Sigrún­ar.
Efaðist í átta ár um að hún gæti eignast börn
ViðtalMóðursýkiskastið

Ef­að­ist í átta ár um að hún gæti eign­ast börn

Elísa Ósk Lína­dótt­ir var 19 ára þeg­ar kven­sjúk­dóma­lækn­ir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barneign­um. Eng­ar ráð­legg­ing­ar um henn­ar eig­in heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferð­ir með þá­ver­andi kær­ast­an­um sín­um. „Ég var ekk­ert til­bú­in í að verða mamma,“ seg­ir Elísa sem ef­að­ist í kjöl­far­ið um að hún myndi geta eign­ast börn.
Innsæi Karenar öskraði: „Það er eitthvað að“
ViðtalMóðursýkiskastið

Inn­sæi Kar­en­ar öskr­aði: „Það er eitt­hvað að“

Þeg­ar Kar­en Ösp Frið­riks­dótt­ir lá sár­kval­in á kvenna­deild Land­spít­ala ár­ið 2019 var hún sök­uð um verkjalyfjafíkn. Hún hafði þá ver­ið verkj­uð síð­an hún var níu ára. Geð­lækn­ir leiddi að því lík­um að verk­ir henn­ar tengd­ust gervióléttu. Tveim­ur ár­um síð­ar fékk hún loks stað­fest­ingu á því að hún væri með lík­am­leg­an sjúk­dóm. Hún von­ar að heil­brigðis­kerf­ið og sam­fé­lag­ið læri af henn­ar sögu.
Lenti í fæðingunni sem hún óttaðist mest
ViðtalMóðursýkiskastið

Lenti í fæð­ing­unni sem hún ótt­að­ist mest

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þeg­ar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ seg­ir Sigrún Lilja Guð­jóns­dótt­ir, sem gekk í gegn­um mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­mál­um á borð við lífs­hættu­leg­an blóð­missi, sýk­ingu, að­gerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kall­ar eft­ir því að bet­ur sé hlustað á kon­ur sem segja frá óeðli­leg­um sárs­auka og að ókeyp­is neyð­ar­þjón­ustu sé kom­ið á fyr­ir þær sem lenda í al­var­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi.
Veikindi kvenna afskrifuð: „Hún er bara móðursjúk“
ÚttektMóðursýkiskastið

Veik­indi kvenna af­skrif­uð: „Hún er bara móð­ur­sjúk“

Ein var köll­uð fík­ill þeg­ar hún lýsti óbæri­leg­um lík­am­leg­um kvöl­um. Svo var hún sögð með heilsu­kvíða. Önn­ur var sögð ímynd­un­ar­veik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dótt­ir henn­ar, sem var með ógreint heila­æxli, fékk sama við­ur­nefni. Sög­ur þess­ara kvenna, kvenna sem hafa mætt skiln­ings­leysi inn­an heil­brigðis­kerf­is­ins þrátt fyr­ir al­var­leg­an heilsu­brest, eru sagð­ar í nýj­um hlað­varps­þátt­um Heim­ild­ar­inn­ar: Móð­ur­sýkiskast­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár